Það ætlar að ganga illa að kveikja á jólatrénu á Stakkagerðistúni en í annað sinn þarf að fresta jólatrésskemmtuninni sem fyrirhuguð var klukkan 17:00 í dag. Veðrið hefur ekki gengið jafn hratt niður og vonir stóðu til en eins og er, er leiðindarok og rigning í Vestmannaeyjum.