Snorri Þór Guðmundsson 41 árs stýrimaður á Vestmannaey VE 444 reynir nú allt hvað hann getur til að láta draum sinn rætast sem er að taka þátt í siglingaskútukeppni í kringum heiminn sem ber heitið Clipper Round The World Yacht Race. Til að eiga sem mesta möguleika á að komast í hópinn þarf Snorri að safna atkvæðum á síðunni sem má nálgast með því að smella HÉR. Atkvæði þarf að staðfesta með tölvupósti sem fólk fær til baka eftir að hafa greitt atkvæði. Það fylgir enginn frekari tölvupóstur í kjölfarið.