Siggeir Pétursson, skipstjóri á Breiðarfjarðarferjunni Baldri, segir það af og frá að tekin hafi verið áhætta þegar Baldur sigldi inn í Landeyjahöfn eins og gefið var í skyn í Kastljósi á miðvikudaginn. Breiðarfjarðarferjan Baldur hefur nokkrum sinnum siglt milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja í stað Herjólfs. Í Kastljósi á miðvikudaginn var sagt frá því að siglingin hafi gengið bærilega og jafnvel að hann henti betur en Herjólfur. Það hafi vakið mönnum trú að sérhönnuð ferja gæti ráðið vel við aðstæður í Landeyjahöfn. Þó komu fram efasemdir um að siglingar Baldurs hafi verið í lagi og var sýnt myndband sem sýndi ferjuna sigla inn í Landeyjahöfn í talsverðu brimi og sást hún rásaði til.