Fyrsta ferð Herjólfs í dag, þriðjudag fellur niður vegna ölduhæðar við Landeyjahöfn. Skipið átti að halda úr höfn klukkan 8:30 frá Vestmannaeyjum og 10:00 frá Landeyjahöfn. Í tilkynningu frá Eimskip segir að ölduspá sé nú að rætast og útlitið fyrir daginn sé ekki gott. Athuga á með næstu ferð skipsins klukkan 11:00 í dag.