Baráttusigur Eyjamanna á ÍR
ÍBV vann í dag laglegan baráttusigur á ÍR í Olísdeild karla. Eyjamenn voru lengst af yfir í leiknum, ef frá er talinn tíu mínútna kafli í fyrri hálfleik þar sem ekkert gekk upp í sókninni. Undir lok leiksins var mikil spenna. ÍBV var tveimur mörkum yfir en ÍR minnkaði muninn í eitt mark þegar um hálf mínúta var eftir og Eyjamenn einum færri. En leikmenn ÍBV sýndu yfirvegun, fengu aukakast þegar fimm sekúndur voru eftir en klúðruðu því reyndar þannig að ÍR fékk boltann þegar tvær sekúndur voru eftir. �?að dugði þeim ekki til að skora sigurmarkið og Eyjamenn fögnuðu vel og innilega í leikslok.
Fyrri hálfleikur var jafn fyrstu 14 mínúturnar en þá hrökk allt í baklás í sókninni hjá ÍBV. Eyjamenn léku án Róberts Hostert sem er meiddur og munaði talsvert um að hafa hann ekki á þessum kafla leiksins. En eftir leikhlé á 20. mínútu náðu leikmenn ÍBV áttum og nýttu sér svo vel að vera tveimur fleiri undir lok hálfleiksins með því að ná fjögurra marka forskot, 16:12 fyrir hálfleik.
Í síðari hálfleik voru Eyjamenn lengst af yfir en ÍR-ingar aldrei langt undan. Sóknarleikur ÍBV virðist vera hökkta eitthvað um þessar mundir en það kom ekki að sök því vörn og markvarsla var mjög góð í seinni hálfleik.
Með sigrinum í dag eru Eyjamenn komnir upp í þriðja sæti deildarinnar, eru með jafn mörg stig og Fram eða 8 en hafa betur í innbyrðis viðureignum gegn Fram og eru því fyrir ofan. Haukar eru efstir í deildinni með 10 stig en FH er í öðru sæti með 9. Olísdeildin er hnífjöfn og spennandi og verður það vonandi áfram í vetur.
Mörk ÍBV: Andri Heimir Friðriksson 7 / 3, Theodór Sigurbjörnsson 6, Agnar Smári Jónsson 4, Guðni Ingvarsson 4, Magnús Stefánsson 3, Filip Scepanovic 1, Grétar Eyþórsson 1, Sindri Haraldsson 1.
Varin skot: Haukur Jónsson 17.

Nýjustu fréttir

Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.