Fengu m.a. gamla skipsklukku í trollið
Sagnheimar, byggðasafn eiga marga velunnara innan sjómannastéttarinnar og er áhöfnin á �?órunni Sveinsdóttur VE 401 þar engin undantekning. Er þeir komu í land fyrir nokkrum dögum voru þeir auk hefðbundis afla, með skipsklukku og bút af torkennilegum hlut (spil?) sem þeir fengu í trollið á Breiðamerkurdýpi. Viðar Sigurjónsson, skipstjóri, vissi ekki til þess að nokkurt skipsflak væri merkt nákvæmlega þarna og við fyrstu skoðun er ekki hægt að sjá neitt nafn á klukkunni. Freistandi er að álykta að klukkan og búturinn séu úr sama skipi. Haft verður samband við forverði �?jóðminjasafns um aðstoð við frekari greiningu á þessum spennandi fundi.
Á myndinni hér að ofan má sjá Sigurjón �?skarsson, útgerðarmann og og Guðmund Guðlaugsson með klukkuna góðu.
(sagnheimar.is)

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.