ÍBV tekur á móti Akureyri í dag klukkan 13:00 í Olísdeild karla. Eyjamenn lögðu einmitt Akureyri að velli síðastliðinn sunnudag í Eyjum 30:27 og unnu einnig leik liðanna fyrir norðan, 22:35. �?að má því búast við að Akureyringar leggi allt í sölurnar í dag en leikur liðanna á sunnudaginnn var nokkuð jafn og spennandi. Stuðningurinn á pöllunum í síðustu tveimur leikjum hefur verið frábær og stemmningin eftir því og óska leikmenn ÍBV eftir sama stuðningi í dag. Sigur í leiknum myndi minnka muninn á milli ÍBV og toppliðs Hauka niður þrjú stig, og um leið auka muninn á milli ÍBV og Vals, sem er í þriðja sæti, í þrjú stig.