Á fundi fulltrúaráðs ÍBV-íþróttafélags í gær og félagsfundi á eftir voru kynntar niðurstöður vinnu fjárhagsnefndar félagsins sem skipuð var árið 2012. Helst ber þar að nefna drög að samningi við Ísfélag, Íslandsbanka, Vinnslustöð og Vestmannaeyjabæ um að þau leggi félaginu til 60 milljónir króna á næstu þremur árum. ÍBV undirgengst ákveðin skilyrði um fjárhagslega endurskipulagningu og að ekki verði farið í fjárfestingar á tímabilinu.
Markmið samkomulagsins er að koma félaginu í rekstrarhæft ástand til framtíðar svo það geti sinnt hlutverki sínu í unglingastarfi, akademíu sem félagið rekur í samstarfi við Grunnskólana og Framhaldsskólann og rekstri meistaraflokka í fótbolta og handbolta. �?essar 60 milljónir eru utan hefðbundinna styrkja sem ÍBV hefur fengið frá þessum fyrirtækjum og bænum.
Fjárhagsnefndin var sett á laggirnar vegna bágrar stöðu félagsins sem skuldaði 166 milljónir króna árið 2012. Nefndina skipa Guðmundur Ásgeirsson formaður, Íris Róberts-dóttir, Sindri Viðarsson og Hörður �?skarsson. Helstu verkefnin voru að setja fjárhagsreglur fyrir félagið, samþykkja fjárhagsáætlanir og fylgja þeim eftir, veita deildunum aðhald í rekstri, vinna markvisst að lækkun skulda og semja við lánardrottna.
Stærsta skrefið er samkomulagið við Ísfélag Vestmannaeyja, Íslandsbanka, Vestmannaeyjabæ og Vinnslustöðina. Aðdragandi samkomulagsins er mjög slæm fjárhagsstaða félagsins og fór bærinn fram á úttekt á rekstri félagsins sem skuldaði of mikið, samtals 166 milljónir í árslok 2012. Krafan var að félagið hefði betri stjórn á útgjöldum, setti sér fjárhagsreglur og fylgdi þeim eftir.
Markmið samkomulagsins er að koma félaginu í rekstrarhæft ástand til framtíðar svo það geti sinnt hlutverki sínu sem er fyrst og fremst barna- og unglingastarf með skipulögðum æfingum og akademíu. Einnig því að geta haldið úti keppnisliðum í meistaraflokki karla og kvenna í fótbolta og handbolta og halda Shellmót, Pæjumót, þjóðhátíð og þrettándann ásamt fleiri atburðum.
Nánar í Eyjafréttum