Í tilefni af því að í dag eru liðin eitthundrað ár frá fæðingu Ástgeirs �?lafssonar frá Litlabæ, eða Ása í Bæ, er hér stutt myndband þar sem hann syngur �??Undrahattinn�??. Ási spilaði á gítar og hann hafði það fyrir sið á �?jóðhátíðum að setjast uppí brekku með gítarinn sinn; í kringum hann safnaðist alltaf stór hópur af fólki og söng með honum af hjartans list. Við getum ímyndað okkur að þetta myndband sem hér fylgir væri upptaka af þessum brekkusöng Ása á �?jóðhátíð.