Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið og þá sérstaklega vegna umferðarmála. Helgin fór ágætlega fram og lítið um útköll á skemmtistaði bæjarins.
Ein eignaspjöll voru tilkynnt lögreglu í liðinni viku en um var að ræða skemmdir á styttu sem stóð við Arnardranga. Einnig var ljós sem lýsti upp Arnardranga, skemmt. Er talið að eignapjöllin hafi verið unnin aðfaranótt 13. apríl sl. Ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru að verki og eru því allar upplýsingar um hugsanlegan geranda eða gerendur vel þegnar.
Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis um liðna helgi og var hann sviptur ökuréttindum í framhaldi af því.
�?á var einn ökumaður stöðvaður vegna hraðaksturs en hann mældist á 94 km/klst. á Strembugötu, en eins og ökumenn eiga að vita þá er hámarkshraði innanbæjar 50 km/klst. nema annað sé tekið fram. Rétt er að geta þess að sekt þessa ökumanns vegna þessa akstursmáta nemur kr. 50.000,-.
Tvær kærur liggja fyrir vegna vanrækslu á að nota öryggisbelti í akstri og þá fékk einn ökumaður sekt fyrir að aka án þess að hafa endurnýjað ökuréttindi sín.
Síðdegis þann 10. apríl sl. var lögreglu tilkynnt um að bifreið hafi lent utan vega á Hamarsvegi, sunnan Dverghamars. �?arna hafði ökumaður, sem var að taka framúr bifreið, misst stjórn á akstrinum með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti utan vega. �?kumaðurinn sem var einn í bifreiðinni, var fluttur á sjúkrahús Vestmanneyja til aðhlynningar en meiðsl hans voru ekki alvarleg og fékk hann að fara heim að skoðun lokinni. Talið er að farið hefði verr ef ökumaðurinn hefði ekki verið með öryggisbeltið spennt þegar óhappið átti sér stað. Bifreiðin er töluvert skemmd ef ekki ónýt.
Tvö önnur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni en í báðum tilvikum var um minniháttar óhöpp að ræða og engin slys á fólki.
Lögreglan vill benda ökumönnum og eigendum ökutækja á að tími nagladekkjanna rennur út 15. apríl. Hins vegar verður ekki byrjað að beita sektum vegna aksturs á nagladekkjum, þar sem enn getur brugðið til beggja vona varðandi veðurfar, en lögreglan mun senda út tilkynningu þegar að því kemur að farið verður að beita sektum.