Á árinu 2014 eru liðin 100 ár frá fæðingu Ása í Bæ, tónlistarmanns og aflakóngs frá Vestmannaeyjum. Hann hét fullu nafni Ástgeir Kristinn �?lafsson, fæddist 27. febrúar 1914 og lést 1. maí 1985.
Á dánardegi Ása mun Sighvatur Jónsson rifja upp sögu mannsins sem var best þekktur fyrir textagerð og lagasmíðar. �?að vita færri að Ási var einnig afkastamikill rithöfundur. Í þættinum verða leikin lög Ása af tónleikum sem haldnir voru í Hörpu 8. febrúar 2014. Einnig verða leiknar upptökur frá dagskrá um Ása í Safnahúsi Vestmannaeyja 27. febrúar 2014, þar sem sonur Ása fjallaði um ritstörf hans ásamt því sem sonasynir Ása lásu úr verkum hans.