Sumarstúlka Vestmannaeyja 2014 er Sæunn Ása Ágústsdóttir. Keppnin fór fram í Höllinni í gærkvöld en tólf glæsilegar stúlkur tóku þátt í keppninni í ár. Linda Björg �?marsdóttir var valin Bjartasta brosið, Indíana Guðný Kristinsdóttir var valin Sportstúlkan, Selma Rut Sigurbjörnsdóttir var valin Vinsælasta stelpan og Eydís �?sp Karlsdóttir var valin Ljósmyndafyrirsæta keppninnar. Keppnin var annars öll hin glæsilegasta, stúlkurnar komu fram í sérstöku opnunaratriði, í tveimur tískusýningum og kjólainnkomu en að lokum fór krýningin fram. Eftir keppnina var svo haldið ball þar sem stuðboltinn Páll �?skar Hjálmtýsson skemmti.