Ekki óhróður heldur blákaldur veruleiki
Í gær hélt Sigurður G. Guðjónsson því fram að Reynir Traustason hefði fengið fé hjá útgerðarmanni gegn því að í staðinn fengi hann neikvæða umfjöllun um annan útgerðarmann. �?að var óstaðfest frétt. Sú saga féll algerlega að þeirri sögu sem lengi hefur verið sögð hér í Vestmannaeyjum um að Guðmundur Kristjánsson í Brimi hefði látið Reyni Traustason hafa 15 milljónir gegn því að fá neikvæða umfjöllun um Vinnslustöð Vestmannaeyja og Sigurgeir Brynjar. �?g ákvað að fullkveða hina hálfkveðnu vísu Sigurðs G. �?ar réði fyrst og fremst að mér þótti rétt að Eyjamenn vissu að þarna er verið að fjalla um burðarás í atvinnulífi Vestmannaeyja �?? Vinnslustöð Vestmannaeyja.
Nú hefur Reynir Traustason staðfest að hann tók við þessu fé frá Guðmundi. (http://eyjan.pressan.is/frettir/2014/08/31/reynir-stadfestir-ad-hafa-fengid-lan-fra-gudmundi-i-brimi-aldrei-reynt-ad-styra-umfjollun/). �?að gerir hann um leið og hann sakar mig um �??óhróður�??. Já, Reynir Traustason ritstjóri DV sem lýst hefur hvernig hann og blaðið �??pönkast á fólki�?? og �??tekur það niður�?? (sjá: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2008/12/15/stodum_andspaenis_thessum_hrodalegu_orlogum/) sakar mig um óhróður.
Minn meinti óhróður var sem sagt að setja nöfn á persónur og leikendur í hálfkveðinni vísu. �?ví fylgdi ég eftir með þeim orðum að ef satt reyndist að Guðmundur Kristjánsson hefði keypt ákveðna umfjöllun af DV þá væri það alvarlegt.
Sá nafngreindi í sögunni �??Guðmundur Kristjánsson- hefur einnig brugðist við og hyggst nú draga þennan bæjarstjóraræfil fyrir dómstóla vegna rógburðs og tilraunar til að sverta mannorðs hans. Leitt þykir mér ef það hefur sært Guðmund að nafn hans skuli hafa verið nefnt. Honum hefur þá væntanlega sárnað enn meira þegar Reynir staðfesti að hafa tekið við 15 milljónum frá honum. (http://www.visir.is/reynir-vidurkennir-ad-hafa-fengid-lan-fra-gudmundi/article/2014140839921)
Fjölmiðlar hér á landi eru á krossgötum. Mogganum er legið á hálsi að vera í þjónkun við þá eigendur sína sem eru útgerðarmenn. 365 er legið á hálsi að vera undir hælnum á eigendum sínum (Jóni Ásgeiri og Ingibjörgu Pálmadóttur). R�?V er legið á hálsi að vera vinstrisinnað og ganga erinda VG og Samfó. Allt er þetta til að draga úr trúverðugleika fjölmiðla. �?líkt þessum ávirðingum þá er til upptaka af samtali Reynis Traustasonar þar sem hann viðurkennir að láta undan þrýstingi eigenda (http://eyjan.pressan.is/frettir/2008/12/15/reynir-traustason-let-undan-thrystingi-thetta-er-thannig-ad-land-ad-hotad-var-ad-stodva-prentun-dv/). Ef til vill er það í eina skiptið sem Reynir hefur stýrt umfjöllun út frá slíku. Ef til vill taldi Guðmundur Krisjánsson að það væri góð fjárfesting að lána Reyni Traustasyni 15 milljónir. Ef til vill lét Guðmundur Reyni fá þetta fé án þess að ætlast til neins á móti. �?g veit það ekki.
�?g veit bara að sagan um að Guðmundur Kristjánsson útgerðarmaður í Brim lét Reyni Traustason hafa 15 milljónir er sönn. �?að er ekki óhróður heldur blákaldur veruleiki.
�?g veit heldur ekki hvort að lánveiting Guðmundar hefur haft áhrif á skrif DV en ég veit að svona skrifaði Sandkorn um Guðmund:
�??Baráttujaxlinn og útgerðarmaðurinn Guðmundur Kristjánsson, sem kenndur er við Brim, hefur smám saman verið að fóta sig sem helsti og magnaðasti talsmaður útgerðarmanna. Guðmundur hefur yfir sér blæ kímni og visku sem þykir tilbreyting frá hörkunni og áróðrinum sem þykir einkenna LÍ�?.�?? (http://www.dv.is/sandkorn/2012/7/26/dna-gudmundar/)
�?að er ekki óhróður heldur blákaldur veruleiki.
Greinin birtist á vefsíðu Elliða, Ellidi.is.

Nýjustu fréttir

TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.