Framtíð knattspyrnunnar í Vestmannaeyjum
Á morgun, miðvikudaginn 10. september kl. 20.00, verður opinn fundur í Týsheimilinu fyrir velunnara knattspyrnunnar hjá ÍBV. Að fundinum standa velunnarar knattspyrnunnar, bæði hinir almennu stuðningsmenn sem og þeir/þau sem sitja í ráðum ÍBV-íþróttafélags.
Á fundinum er hugmyndin að ræða stöðuna í heild sinni þ.e. frá yngri flokkum félagsins og upp í meistaraflokka. �?au atriði sem verða m.a. rædd eru þessi:
�?� Hvert eigum við að stefna?
�?� Hvernig ætlum við að ná markmiðum okkar?
�?� Hvernig ætlum við að hlúa að og efla upprennandi leikmenn félagsins?
�?� Hvernig ætlum við að ná í meira fjármagn fyrir knattspyrnuna?
�?� Fyrir hvað á ÍBV að standa?
�?� Hvernig nýtum við enn betur samstarfið við KFR og KFS?
�?� Hvernig búum við til öflugan hóp, BAKHJARLA, sem vinnur þétt að markmiðum knattspyrnunnar?
�?að er mjög mikilvægt að allir þeir sem hafa metnað fyrir hönd knattspyrnunnar og eru tilbúnir/tilbúnar til að leggja sitt af mörkum, fjölmenni á fundinn. Tilgangurinn er skýr að gera starf knattspyrnunnar eins öflugt og mögulegt er og um leið að skapa framtíðarleikmenn félagsins. Til að geta gert það sem best þá er mikilvægt að fá sem flestar ábendingar um atriði sem þarf að bæta sem og að huga vel að.
ÁFRAM ÍBV, alltaf og alls staðar.
Velunnarar knattspyrnunnar í Eyjum.

Nýjustu fréttir

Kynningarfundur um verndaráætlun Surtseyjar
Styrkir afhentir við hátíðlega athöfn í Oddfellow – uppfært
Humar í fyrsta sinn á Matey
Vel veiðist hjá Eyjunum
​​Kjörsókn dróst saman í ​Eyjum
Samgönguvandinn bitnar á Eyjagöngum
Kristín Klara í lokahóp u-19
„Það er ekki hlutverk ríkisins að bæta þetta tjón“
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.