Vill færa málefni aldraðra til sveitarfélaganna
Félags- og húsnæðismálaráðherra, segir sína skoðun að flytja eigi ábyrgð á þjónustu við aldraða til sveitarfélaga, rétt eins og málefni fatlaðra og menntun á grunnskólastigi. Samþætting heimaþjónustu er viðfangsefni norrænnar ráðstefnu sem nú stendur yfir í Reykjavík.
Ráðstefnan hófst í morgun með ávarpi Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra. Hún ræddi í upphafi um fjölgun aldraðra en lagði áherslu á að það ætti ekki að skoða sem vandamál, heldur staðreynd. �??Við þurfum að snúa opinberri umræðu um málefni aldraðra frá vandamálum að lausnum. Samhliða þurfum við að sinna stefnumótun sem tekur mið af staðreyndum og raunhæfum tækifærum. Við þurfum stefnu sem setur í forgang þarfir fólksins sem þarf á þjónustu að halda, sama hver veitir hana�?? sagði ráðherra meðal annars.
Hér á landi bera sveitarfélögin ábyrgð á félagslegri þjónustu og þar með er talin ýmis þjónusta í heimahúsum, en ríkið er ábyrgð fyrir heilbrigðisþjónustu og þar með telst heimahjúkrun og hjúkrunarheimili. Ráðherra ræddi um margra ára vinnu við samþættingu heimahjúkrunar og heimaþjónustu í Reykjavík og jákvæð áhrif þess þegar skrefið var stigið til fulls og borgin tók að sér rekstur heimahjúkrunar. Hún sagði það tæpast hafa komið nokkrum á óvart, því allir þekki ókostina við tvískipta ábyrgð á svo nátengdum þjónustuþáttum eins og heimahjúkrun og heimaþjónustu þar sem iðulega sé togstreita um verkefni og kostnað: �??Afleiðingarnar eru í versta falli ómarkviss þjónusta, þjónusta sem ekki er í samræmi við þarfir notenda og oft þjónusta sem er mun dýrari en ástæða er til�?? sagði ráðherra meðal annars.
Ráðherra segist þeirrar skoðunar að flytja eigi ábyrgð á þjónustu við aldraða til sveitarfélaganna sem þegar hafi sýnt hvers þau eru megnug við yfirtöku ábyrgðar á þjónustu við fatlað fólk og á grunnskólanum. Nærþjónustan eigi að vera hjá sveitarfélögunum og besta samþættingin á sviði öldrunarþjónustu felist í því að reka þjónustuna á einni hendi. �?annig séu mestar líkur á því að veitt séu úrræði á viðeigandi þjónustustigi og þannig skapist samlegðaráhrif sem efla sveitarstjórnarstigið til góðs fyrir íbúana

Nýjustu fréttir

Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.