Spáð er stormi sem mun ganga yfir landið í kvöld og í nótt. �?að er því við hæfi að koma enn og aftur ábendingu til almennings um að festa lausa hluti sem og fresta ferðalögum þar til veðrið er gengið yfir. �?að sýndi sig í síðustu viku að ekki var vanþörf á að minna almenning á slíkt.
�?að spáir einnig hlýnandi veðri í kvöld og við slíkar aðstæður þá eykst hættan á vatnstjóni vegna stíflaðra niðurfalla, þakrenna eða snjó við innganga kjallara. Oftar en ekki er um að ræða tjón sem ekki er hægt að bæta úr tryggingum. �?að skiptir því miklu máli að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða. Besta leiðin til þess að fyrirbyggja slík tjón er að tryggja að niðurföll og þakrennur virki sem skyldi. Sjóvá beinir tilmælum til húseigenda að hreinsa vel frá niðurföllum í dag svo að snjór, klaki eða óhreinindi stífli þau ekki og moka vel frá inngangi kjallara.
Hvað getur þú gert?
- Hreinsaðu klaka, snjó, sand og lauf frá niðurföllum og þakrennum. �?au verða að virka þegar snjór og klaki bráðnar hratt og mikill vatnselgur myndast.
- Brjótið klaka frá niðurföllum í götu og í innkeyrslu og mokið snjó frá.
- Hreinsaðu snjó og klaka af svölum en gættu að bílum og gangandi vegfarendum.
- Við inngang í kjallara og við glugga eða veggi á neðri hæð gæti þurft að moka frá snjó.