Sárast er að sjá hvað mikið af spörfuglum endar líf sitt í kattarkjafti
Starfsmenn Náttúrustofunnar hafa merkt nokkuð af spörfuglum í Vestmannaeyjabæ undanfarna vetur. Í vetur hafa veiðst nokkrir merktir fuglar sem ýmist voru merktir á sama stað síðasta vetur eða þá að þeir voru lengra að komnir. Farið er í gegnum þessar endurheimtur hér neðar. Sárast er að sjá hvað mikið af spörfuglum endar líf sitt í kattarkjafti. Höfum við fengið upplýsingar um fimm merkta fugla sem heimiliskettir hafa komið með til eigenda sinna, tvo hettusöngvara, tvo skógarþresti og einn stara.
Í desember á síðasta ári merktum við 90 snjótittlinga, 87, stara, 37 skógarþresti, 7 hettusöngvara, 4 glóbrystinga, 3 svartþresti og eina bókfinku. Allir voru fuglarnir veiddir í búr í garði við Vestmannabraut. Að auki endurheimtust nokkrir fuglar sem merktir hefðu verið fyrr í sama garði eða þá að þeir voru lengra að komnir.
Tveir snjótittlingar veiddust sem voru merktir á sama stað 5. janúar 2014.
Skógarþröstur kom í búr 10. desember en hann var merktur á sama stað 17. desember 2013.
Stari kom í búr 5. janúar síðastliðinn en hann var merktur á sama stað 6. desember 2013.
Skógarþröstur sem kom í búr 15. desember hafði verið merktur á Akureyri fyrr sama ár en við höfum ekki enn fengið nákvæmar upplýsingar um þennan fugl.
Hettusöngvari sem kom í búr 15. desember hafði verið merktur í Frakklandi 22. október sama ár.
setur.is

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.