Glæsilegur sigur 3. flokks karla
Nú fyrir skömmu lauk leik 3. flokks karla ÍBV og KA í undanúrslitum Bikarkeppni HSÍ. Leiknum lauk með sigri ÍBV, 29 �?? 30, sem þar með hefur tryggt sér farseðil í sjálfan úrslitaleik bikarkeppninnar sem fram fer 28. febrúar nk. Leikurinn var í alla staði æsispennandi eins og svo oft vill verða þegar um bikarleiki er að ræða og jafnt á öllum tölum framan af. �?annig var staðan 4 �?? 4 þegar 10 mínútur voru liðnar af leiknum en eftir því sem leið á leikinn hertu Eyjamenn tökin og höfðu tryggt sér tveggja marka forskot í hálfleik, 11- 13. Framan af seinni hálfleik virtist sem Eyjamenn ætluðu að kafsigla norðanmenn og þegar 13 mínútur voru eftir höfðu Eyjamenn 6 marka forskot 20 �?? 26. Í þeirri stöðu missti ÍBV hinsvegar sinn markahæsta mann, Nökkva Dan Elliðason, af leikvelli í tvær mínútur fyrir varnarbrot. KA nýtti sér liðsmuninn vel og minnkuðu muninn niður í 3 mörk á þeim leikkafla. �?ar með höfðu þeir fengið blóðbragð á tennurnar og fengu á ný trú á verkefnið. �?eir gripu þá til þess ráðs að taka úr umferð tvo af leikmönnum ÍBV, Nökkva Dan og Hákon Daða, og virtist um tíma sem það myndi skila árangri þvi þegar tvær mínútur voru eftir af leiktímanum minnkaði KA muninn í eitt mark. Eyjamenn voru þó ekki á því að gefa eftir farseðilinn í Höllina og svo fór að þeir sigldu sigrinum í örugga höfn, lokatölur sem fyrr segir 29 �?? 30.
Nú bíður hinsvegar erfitt verkefni því í úrslitaleiknum mæta þeir Valsmönnum sem þykja eitt af sterkari liðum landsins. Ekki verður þó séð að Eyjamenn kvíði því verkefni ef mið er tekið af söng þeirra og dansi að loknum undanúrslitaleiksins. Skilaboðin þar voru skýr þar sem þeir sungu hástöfum: �??Koma Valur stolt Reykavíkur…�??: https://www.facebook.com/baldur.haraldsson.10?fref=ts
Mörk ÍBV:Nökkvi Dan 10, Friðrik Hólm 9, Hákon Daði 5, Elliði Snær 4, Logi Snædal 2.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.