Loðnulyktin góða mun umleika helstu hafnir víða um landið næstu daga því það lítur út fyrir að þessi vertíð hafi loks verði flautuð á með formlegum hætti í dag;-) Sem sagt fyrsti alvöru dagurinn á þessari vertíð með almennri veiði á öllum flotanum sem saman var kominn á mun eðlilegri slóðir miðað við árstíma eða suðaustur af landinu nánar tiltekið út af Stokksnesi austur af Hornafirði. Voru margir að fá góð köst í dag, við þar á meðal þegar við fengum um 800 tonn í einu kasti í morgun. �?á lentum við í því að rífa illa líka.. En við urðum varir við mikið af loðnu á þessu slóðum í brælunni um daginn, biðum þess vegna inni á Djúpavogi, en flotin byrjaði svo að kasta fljótlega eftir hádegi í gær þegar loks tók að lægja. Við náðum þó bara einu kasti í gær sem gaf 200 tonn og annað þar sem nótin gaf sig því miður.
En dagurinn í dag markar svo upphafið af þessu viljum við meina og eigum við þá ósk að veður og veiði haldist í hendur, þetta fari í góðan farveg, verði farsæl og gjöful loðnuvertíð . Við leggjum svo fljótlega af stað til �?órshafnar með fullt skip af loðnu eða um leið og við höfum lokið við að dæla restinni úr nótin yfir til vinar vors og blóma Bjarki Kristjánsson OKKAR og hans menn á Júpíter þar sem hann er skipstjóri þessa stundina. �?tli siglingin til �?órshafnar taki okkur ekki svo um 14 tíma eða svo ef allt gengur að óskum.
Svo það er að færast líf í kringum landið og miðin. sem gleður margan.
Yfir og út með kveðju frá Álsey við Stokksnes, Kristó