�?trúlegur sigur í Laugardalshöllinni
Eyjamenn unnu ótrúlegan tveggja marka sigur á Haukum í undanúrslitum Coca-Cola bikars karla í kvöld. Strákarnir spila því úrslitaleik gegn FH-ingum á morgun.
Leikurinn í kvöld var ótrúlegur og vorkenni ég öllum þeim sem ekki komust til að styðja Eyjamenn. ÍBV-liðið sýndi enn einu sinni hversu mikilvægt það er að gefast ekki upp. Eyjamenn byrjuðu leikinn þó betur og komust yfir í þrjú skipti. Í stöðunni 3:2 tóku Haukamenn við sér. �?eir nýttu sínar sóknir vel og keyrðu í bakið á Eyjamönnum er þeir skoruðu.
Grétari �?ór Eyþórssyni var vikið af leikvelli eftir sextán mínútna leik í stöðunni 6:7 fyrir Hauka. �?á tók hann vítakast sem fór í andlitið á markverði Hauka. Annar dómara leiksins ákvað að gefa Grétari rauða spjaldið eftir að markvörður Hauka hafði öskrað á hann. Upptökur af atvikinu sýna að dómarinn hafði rangt fyrir sér.
Haukamenn gengu á lagið þegar að leikurinn hófst á ný og tóku öll völd á vellinum. �?eir lengdu sínar sóknir og urðu grimmari í vörninni. Haukar skoruðu tvö síðustu mörk fyrri hálfleiksins og leiddu því 10:14 í hálfleik. Síðasta markið var mikið kjaftshögg fyrir Eyjamenn því Haukar áttu að byrja með boltann í seinni hálfleik.
Í upphafi síðari hálfleiks kom stemning í Eyjamenn og minnkuðu þeir muninn strax. �?á hrökk markvörður Hauka aftur í gang og hélt sínum mönnum á floti. Haukar náðu síðan sex marka forystu í stöðunni 12:18. �?á tók við einhver mesti viðsnúningur sem undirritaður hefur séð. Laugardalshöllin nötraði og var það Eyjamönnum að þakka.
Hákon Daði Styrmisson steig upp á mikilvægum tímapunkti og skoraði þrjú af næstu sex mörkum Eyjamanna. Strákarnir okkar sneru taflinu við og jöfnuðu leikinn í 18:18. �?á steig annar leikmaður upp í liðinu þegar Kolbeinn Arnarsson varði vítakast.
Vítavarslan gerði gríðarlega mikið fyrir Eyjamenn og má segja að stúkan hafi sturlast. Eyjamenn skoruðu næstu þrjú mörk sem þýddi það að þeir höfðu skorað níu mörk í röð. �?að þýddi einnig að Haukar skoruðu ekki mark í fimmtán mínútur.
Eyjamenn sigldu sigrinum heim með Agnar Smára Jónsson fremstan í flokki. Hann skoraði tvö síðustu mörk Eyjamanna, sigurmörk leiksins.
Lokatölur í Laugardalshöllinni því 23:21 í einum ótrúlegasta leik sem ég hef séð.
�?að er ekki hægt að skrifa grein um þennan leik án þess að minnast á Hvítu Riddarana. �?eir tóku af skarið þegar mest á reyndi og komu krafti í liðið á ný. Haukamenn áttu ekki séns í Eyjamenn í stúkunni og ekki heldur inni á vellinum á síðustu tuttugu mínútum leiksins.
Við hvetjum alla Eyjamenn til þess að fjölmenna í Laugardalshöllina á morgun og sjá strákana okkar taka við bikarnum. Herjólfur ætlar að bjóða Eyjamönnum í Herjólf fram og til baka á morgun.
Mörk ÍBV í leiknum: Agnar Smári Jónsson 6, Theodór Sigurbjörnsson 5, Hákon Daði Styrmisson 4, Magnús Stefánsson 3, Einar Sverrisson 2, Andri Heimir Friðriksson 1, Grétar �?ór Eyþórsson 1 og Guðni Ingvarsson 1.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.