Skilar jákvæðum rekstarafgangi áttunda árið í röð
Ársreikningar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2014 hafa nú verið birtir. Heildar rekstrartekjur samstæðu Vestmannaeyjabæjar námu 4.084 m.kr. og rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði námu 3.999 m.kr. Rekstrarafkoma samstæðu fyrir fjármagnsliði var því jákvæð um 85 milljónir. �?etta kemur fram í fréttatilkynningu frá bæjarstjóra. Tekjur dragast nokkuð saman á milli ára og fara úr 4.126 milljónum í 4.084 milljónir. Mestu munar þar um að tekjur vegna útsvars lækka nokkuð. Slíkt þarf þó ekki að koma óvart enda laun í Vestmannaeyjum nánast bein afleiða af verðmæti lands afla. Verðmæti landaðs afla í Vestmannaeyjum fór úr 17 milljörðum árið 2013 í 14 milljarða árið 2014. �?ví miður á það við um allt land þar sem heildarverðmæti sjávarafla á landinu öllu var 136 milljarðar árið 2014 en 153 milljarðar árið 2013.
�??Eftir sem áður bera ásreikningar 2014 það með sér að rekstur Vestmannaeyjabæjar gengur vel. Veltufé aðalsjóðs frá rekstri var 549 milljónir og veltufé frá rekstri samstæðu var 610 milljónir. Vestmannaeyjabær hefur á seinustu árum verið að greiða niður áratuga gamlar skuldir og er búinn að greiða niður skuldir og skuldbindingar fyrir u.þ.b. 5300 milljónir síðan 2006. Heildar vaxtaberandi skuldir pr. íbúa af samstæðu eru nú um130 þúsund. Með reglulegum afborgunum mun Vestmannaeyjabær nálgast það að verða skuldlaus við lánastofnanir innan fárra ára.
Á sama hátt hefur allt kapp verið lagt á að greiða upp skuldbindingar og var stærsta skrefið í því tekið árið 2013 þegar eignir Vestmannaeyjabæjar voru keyptar til baka af Fasteign hf. Skuldahlutfall sveitarfélagsins eins og það er skilgreint í 64 gr. sveitarstjórnarlaga er nú komið í 101% hjá A-hlutanum og 102% hjá samstæðunni. Í lok árs 2011 var þetta hlutfall 164% hjá A-hluta og 155% hjá samstæðunni. Hámarkshlutfall skv. sveitarstjórnarlögum er 150 %.
Heildareignir samstæðu Vestmannaeyjabæjar námu 9.996 m.kr. í árslok 2014, þar af var handbært fé upp á 2.076 m.kr.. Á árinu 2014 hækkaði handbært fé samstæðunar um 79 milljónir. Allar kennitölur í rekstri sýna sterka og góða fjárhagsstöðu Vestmannaeyjabæjar. Veltufjárhlutfall sveitarsjóðs er 9,47 og eiginfjárhlutfallið er 65,24%. Veltufjárhlutfall samstæðu er 5,08 og eiginfjárhlutfall þess 58,31%. �?essi niðurstaða er bæjarstjórn fyrst og fremst hvatning til að gæta þess áfram að missa ekki tökin á skulda og útgjaldahliðinni. Vandaður rekstur er það sem helst tryggir öfluga og góða þjónustu,�?? segir í frétt sem Elliði Vignisson, bæjarstjóri sendi frá sér.

Nýjustu fréttir

Slá ekki slöku við
Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins
Útgáfutónleikar Vina og vandamanna: Eyjalögin lifa áfram
Sjolag.is í stað veður- og ölduspár á netinu
ÞESAL – Partýljón, teiknimyndir, djamm og djús
Lúðrasveitir sameinast með stórstjörnum í Hörpu
Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana
Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.