Sigrar í tveimur síðustu leikjum gefa góð fyrirheit
Nú þegar þrjár vikur eru í að Íslandsmótið hefst og langur vetur (vonandi) að baki er ekki úr vegi að fara aðeins yfir stöðuna. Við erum nýkomnir úr kærkominni æfingaferð frá Campoamor á Spáni þar sem við gátum æft og spilað fótbolta við toppaðstæður. Veðrið var svo sem ekkert að leika við okkur þar heldur, en rennisléttir grasvellir, góður matur og flott hótel bætti upp fyrir allt saman. �?fingaferð sem þessi er fótboltaliðum gríðarlega dýrmæt, ekki síst fyrir okkur Eyjamenn, og þar náum við að stilla saman strengina fyrir komandi átök. �?að er engin spurning í mínum huga að ætlunarverk okkar um að koma tilbaka til Eyja sem betra lið hafi svo sannarlega tekist. Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópnum frá því í fyrra og þessi mikla samvera bæði utan vallar og innan hefur gert okkur mjög gott.
Frammistaðan og úrslitin í æfingaleikjum vetrarins hafa verið sveiflukennd. Við byrjuðum feykivel og spiluðum oft á tíðum frábæran fótbolta, skoruðum mikið ásamt því að skapa slatta af færum. En gengi okkar fór að dala eftir því sem veiddist meira á loðnumiðunum og það kom kafli þar sem við áttum erfitt uppdráttar. Daddi slúttaði hins vegar loðnuvertíðinni með balli í Höllinni 1. apríl og síðan þá hefur leiðin legið upp á við. Okkur hefur tekist að vinna í veikleikunum frá leikjunum í mars og sigrar í tveimur síðustu leikjum gefa góð fyrirheit. Markmið okkar um að bæta árangur liðsins verulega frá því í fyrra er alveg skýrt. Við höfum það líka sem markmið að spila skemmtilegan og árangursríkan fótbolta, viljum sækja sem oftast og getað stjórnað leiknum með boltann innan liðsins. �?að allra mikilvægasta verður þó að ná upp sannkallaðri Eyjastemmningu innan liðsins og smita henni til stuðningsmanna ÍBV. Takist það þá fylgir árangurinn í kjölfarið. Hvað aðrir halda um okkur og spár �??sérfræðinganna�?? um hvernig gengi liðsins verður skiptir okkur engu. Við höfum bullandi trú á verkefninu og ætlum að koma ÍBV í fremstu röð áður en langt um líður.
Ástandið á leikmannahópnum er þokkalegt eins og staðan er nú. Fyrir utan Matt þá er enginn sem á við langvarandi meiðsli að stríða. Mees Siers er kominn á fullt aftur og það er stutt í að Jonathan verði orðin leikhæfur, ásamt Gauta, sem meiddist lítillega í æfingaferðinni. Við gerum því ráð fyrir að allir í leikmannahópnum verði klárir fyrir síðustu tvo æfingaleikina. Munið síðan að taka frá sunnudaginn 3. maí, þá ætlum við að vinna Fjölni í fyrsta leik Íslandsmótsins!
ÁFRAM ÍBV, alltaf og alls staðar
Jói H. �?? þjálfari mfl. karla

Nýjustu fréttir

ÍBV með bakið upp við vegg eftir tap gegn Val
Eyjarnar landa í Grindavík
Sterk uppbygging og skýr framtíðarsýn
Skortur á félagslegum tengslum er dauðans alvara
Síðasta Aglow samvera vetrarins
Landeyjahöfn orðin fær á háflóði
Heimsklassa matreiðslumeistarar frá Íslandi á MATEY
Úrslitaeinvígið: Mæta Val á heimavelli
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.