Nóg framundan í sumar
Vestmannaeyingurinn Unnar Gísli Sigurmundsson stimplaði sig rækilega inn á íslenska tónlistarlandakortið þegar hann gaf út smáskífuna “Color Decay” vorið 2014. Unnar Gísla þekkja margir landsmenn undir listamannsnafninu Júníus Meyvant.
Nú hefur Júníus Meyvant lokið við vinnslu sinnar fyrstu þröngskífu og kallast hún einfaldlega EP. �?röngskífuna vann hann víða með upptökumönnunum Magnúsi �?der Kristinssyni og Finni Hákonarsyni. Auk “Color Decay” inniheldur EP þrjú önnur lög, þ.m.t. nýjustu smáskífuna “Hailslide”.
Hann er nú farinn í tónleikaferð þar sem hann kemur fram tvennum tónleikum í Danmörku og þrennum í �?ýskalandi. �?á eru einnig bókaðir nokkrir tónleikar hér á landi og verður hann til að mynda á �?jóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina.
Árið 2014 var gott ár fyrir Júníus Meyvant. “Color Decay” naut mikilla vinsælda meðal hlustenda Rásar 2 og sömuleiðis var lagið valið lag ársins af dagskrárstjóra KEXP, Kevin Cole. Júníus kom, sá og sigraði á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár og fór frá athöfninni með tvenn verðlaun. Annars vegar sem Bjartasta vonin og svo verðlaun fyrir besta lag ársins.
Record Records gefur út og er þröngskífan fáanleg á geisladisk, vínyl og á stafrænum netveitum.
Fréttablaðið greindi frá.

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.