Reyndi að hindra lögreglu í útkalli
Lögreglan hafði í ýmis horn að líta í liðinni viku án þess þó að um alvarleg mál hafi verð að ræða. Töluverður erill var um helgina og nokkuð um að lögreglan þurfti að aðstoða fólk sökum ölvunarástands þess. �?á var eitthvað um að kvartað væri yfir hávaða í tengslum við skemmtanahald fólks.
Að morgni 7. september sl. var óskað eftir aðstoð lögreglu að húsi hér í bæ vegna veikinda. �?egar lögreglan kom á staðinn reyndi einn, sem var gestkomandi í húsinu, að hindra lögreglu í að sinna verkum sínum. Endaði það með því að gesturinn var handtekinn og fékk hann gistingu í fangageymslu lögreglu. Má hann búast við að mál hans endi hjá ákæruvaldinu. Sá veiki var hins vegar fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Töluverð ölvun var í gangi í umræddu húsi.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í vikunni en um var að ræða minniháttar óhapp, en engin slys á fólki.

Nýjustu fréttir

Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.