KSÍ hefur sektað Fylki fyrir að ræða ólöglega við Jose Enrique Seoane Vergara, Sito, leikmann ÍBV. Knattspyrnuráð ÍBV kærði Fylki í haust fyrir að eiga í viðræðum við leikmanninn sem var enn samningsbundinn ÍBV. Skömmu síðar gekk Sito í raðir Fylkis og verður leikmaður þeirra að ári.
Sito gekk í raðir ÍBV um mitt tímabil í ár og skoraði sex mörk í 11 leikjum liðsins í Pepsí-deildinniog átti stóran þátt í að Eyjamenn náðu að halda sæti sínu í deildinni.