Eins og fram hefur komið í dag hefur KSÍ dæmt í máli ÍBV gegn Fylki þar sem Fylki var dæmt að greiða sekt þar sem þeir brutu gegn reglum KSÍ. Í kjölfarið sendi knattspyrnuráðs Fylki frá sér yfirlýsingu um málið þar sem segir meðal annars; ,,Knattspyrnudeild Fylkis telur úrskurð nefndarinnar rangan og lýsir yfir vonbrigðum með hann. Jafnframt lýsir félagið furðu sinni á hvernig nefndin metur fyrirliggjandi gögn málsins sem og þær getgátur um staðreyndir sem koma fram í úrskurðinum, enda telur félagið sig ekki hafa brotið af sér í umræddu máli.”
ÍBV sendi núna fyrir stundu frá sér yfirlýsingu vegna málsins sem lesa má hér fyrir neðan.
Samninga- og félagaskiptanefnd KSÍ hefur úrskurðað í máli knattspyrnuráðs ÍBV gegn knattspyrnudeild Fylkis vegna meints brots Fylkis í samningaviðræðum við Jose �??Sito�?? Vergara Seoane.
�?rskurður nefndarinnar er mjög skýr þar sem nefndin telur í ljós leitt að Fylkir hafi brotið gegn grein 14.13 í reglugerð KSÍ um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga.
�?að hefur alltaf legið fyrir að knattspyrnuráð ÍBV hafði fullvissu fyrir því að Fylkir hafi haft rangt við þegar þeir höfðu samband við Sito sem samningsbundinn leikmann ÍBV fyrir 16. október 2015.
�?að sem liggur fyrir og er grundvöllur þeirrar kæru sem lögð var fram, eru eftirfarandi skriflegar staðfestingar frá leikmanninum sjálfum, í fyrra sinn að kvöldi 16. okt. og í seinna skiptið að morgni 17. okt.
Svar Sito kl. 20.57 föstudagskvöldið 16. október:
I can understand it that you angry and this offer from filkyr was in the last few days.
Svar Sito kl. 09.37 laugardagsmorguninn 17. október:
Filky contacted and made the offer few days ago.
Knattspyrnuráð ÍBV fagnar því að hið sanna hafi verið staðfest. �?að eru hins vegar vonbrigði að til þessa hafi þurft að koma og aðallega að félag í efstu deild hafi orðið uppvíst af því sniðganga reglur KSÍ. ÍBV situr eftir með sárt ennið, hafandi misst öflugan leikmann og fá engar bætur í staðinn. Fylkir hins vegar fær þennan leikmann nánast frítt. Hver er sanngirnin?
�?að er svo annað mál að knattspyrnudeild Fylkis skuli reyna að bera af sér þennan dóm þegar fyrir liggja þessar staðreyndir eins og segir eftirfarandi orðrétt í úrskurði samninga �?? og félagaskiptanefndar KSÍ:
�??Í tölvubréfinu kemur fram að Fylkir hafi haft samband og gert leikmanninum tilboð nokkrum dögum áður, sem hefur þá verið fyrir 16. október 2015. Er það mat nefndarinnar að ekki sé ástæða til að draga efni bréfsins í efa. Yfirlýsingar, sem Fylkir hefur lagt fram í málinu, eru í beinu ósamræmi við efni tölvubréfsins og þykja framkomnar skýringar á ósamræminu hvorki sennilegar né trúverðugar.�??
Knattspyrnuráð ÍBV hvetur KSÍ til að endurskoða umræddar reglur á komandi ársþingi m.a. með því að samræma þær betur þeim reglum sem gilda erlendis, og einnig að viðurlög gagnvart félögum og leikmönnum verði hert til muna. Á þann máta er betur tryggt að félög fari eftir þeim reglum sem eru í gildi.
Stjórn knattspyrnuráðs ÍBV