Forsætisráðherrahjónin slökuðu á og sóttu kraft í Eyjaheimsókn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra er í stóru viðtali í Eyjafréttum sem komu út í gær. �?ar kemur hann víða við. Hann var hér ásamt konu sinni, �?nnu Sigurlaugu Pálsdóttur sem á ættir að rekja til Vestmannaeyja. Afhending á Sigmundssafninu var ein af meginástæðum þess að hann heimsótti Vestmannaeyjar en lengi hafi staðið til að hann kæmi.
�??�?að var á dagskránni að hitta fólk og halda nokkra fundi en svo kom þarna kjörið tilefni, að klára þetta með Sigmundssafnið. Mér finnst alltaf mjög gott að koma hingað. �?að hefur þau áhrif að maður slakar á og fær kraft á sama tíma. �?að er ekki alltaf svoleiðis, það er svolítið sérstakt, að hér fer þetta saman þannig að ég nýt þess að koma,�?? segir Sigmundur og nefnir sérstaklega hvað sunnudagurinn hafi verið stórkostlegur.
�??Við fórum um allt og sáum mjög margt, hittum margt fólk og allt var þetta merkileg og skemmtileg upplifun. �?g vil nefna söfnin sem eru stórkostleg en ég er mikill áhugamaður um sögu og menningarminjar og það er til fyrirmyndar hvað tekist hefur að gera þetta ljóslifandi hér. Sagnheimar eru með bestu söfnum sem ég hef komið á. Milli þess sem maður hefur skoðað þessar menningarminnjar sest maður niður með góðu fólki, keyrir um og skoðar byggðina og náttúruna. �?að er varla hægt að velja sér betri dag og þetta er búið að vera einstaklega skemmtilegt.�??
Nánar í Eyjafréttum.

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjahöfn, lífæð samfélagsins
Sæunn Magnúsdóttir er tilbúin í slaginn
ÍBV í úrslit eftir sigur gegn Haukum
Erfið staða í Land­eyja­höfn
Tvær flugferðir á dag á meðan beðið er opnunar Landeyjahafnar
Hinkrum við, vöndum okkur betur
ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.