Meirihluti farþega Herjólfs á leið á höfuðborgarsvæðið, hugleiðum nú hver er samgöngubótin með ferjuhöfn í Bakkafjöru. Ný hraðskreið ferja á að sigla að öllu jöfnu á 2 tímum Vestm.-Þorláksh. Þaðan er hálftíma akstur til höfuðborgarsvæðisins í dag gegnum Þrengslin. Með nýjum suðurstrandarvegi þyrftu ökumenn ekki að fara fjallveg að vetri til. Ný ferja Vestm.- Bakkafjöruhöfn á að sigla á hálftíma. Þaðan er að sumarlagi 2 tíma keyrsla til höfuðborgarsvæðisins, en umtalsvert lengri tími að keyra að vetri til í misjafnri færð, þannig að fyrir meirihluta farþega Herjólfs yrði samgöngubótin sú að þú þarft að keyra í 2 tíma í staðinn fyrir að sitja í Herjólfi 2 tíma.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst