Lögreglan hafði í mörg horn að líta í vikunni sem leið enda töluverður fjöldi fólks í bænum í tengslum við Goslokahátíð. Hátíðin fór að mestu leiti vel fram en eins og gerist og gengur var eitthvað um pústra en engar kærur liggja fyrir. Þá þurfti lögreglan að aðstoða nokkra gesti hátíðarinnar til síns heima þar sem ganglimir létu ekki af stjórn.