Það var allskonar veður í boði á meistaramóti Golfklúbbs Vestmannaeyja sem fram fór dagana 11. til 14. júlí. Verðlaunaafhending fór fram í gærkvöldi og voru það Daníel Ingi Sigurjónsson og Katrín Harðardóttir sem krýnd voru Vestmanneyjameistarar.
Gríðarleg spenna um efstu sætin Æsispennandi keppni var meðal þriggju efstu manna í meistarflokki karla þeirra Daníels Inga Sigurjónssonar og Lárusar Garðars Long. Að lokum var það bara eitt stig sem skildi á milli þeirra. Var það frábær síðasti hringur Daníels sem tryggði honum sigurinn. Lárus Garðar endaði í öðru og Gunnar Geir Gústafsson í þriðja.
Efstu þrír í meistarflokki karla. Frá vinstri Lárus Garðar Long, sem endaði í 2. sæti þá meistarinn Daníel Ingi Sigurjónsson og loks Gunnar Geir Gústafsson sem endaði í 3. sæti.Sigurvegarar í kvennaflokki, Elsa Valgeirsdóttir 2. sæti ásamt Hrönn Harðardóttur sem endaði þriðja. systir henna Katrín Harðardóttir Vestmannaeyjameistarinn gat ekki verið viðstödd verðlauna afhendinguna.
Í kvenna flokki var ekki minni spenna en þar enduðu þær Elsa Valgeirsdóttir og Katrín Harðardóttir jafnar af stigum eftir lokahring. Kastað þurfti upp hlutkesti til að skera úr sigurvegara og hlaut Katrín hnossið.
Í háforgjafarflokki kvenna var sama spennan en þar hafði Unnur Sigmarsdóttir eitt stig á Hörpu Gísladóttir og sigraði því.
Í fyrsta flokki karla sigraði Brynjar Smári Unnarsson. Rúnar Gauri Gunnarsson í 2. flokki og Karl Jóhann Örlygsson í þeim þriðja.
Í flokki karla ára og eldri var það Guðjón Grétarsson sem hafði sigur úr býtum. Í öldungaflokki 70 ára og eldri sigraði Kristján Gunnar Ólafsson.
Okkar maður Óskar Pétur lét sig að sjálfsögðu ekki vanta á verðlaunaafhendinguna í gærkvöldi og má sjá myndir þaðan hér að neðan.
Kristján Gunnar Ólafsson sigraði í flokki öldunga. Hér tekur hann við verðlauna pening frá Hörpu Gísladóttur og Eyþóri Harðarsyni, stjórnarmönnum í GV.
Þóra Ólafsdóttir endaði þriðja. í háforgjafaflokki kvenna.
Harpa Gísladóttir 2. sæti og Unnur Sigmarsdóttir í fyrsta í háforgjafarflokki kvenna.
Sigurjón Pálsson hlaut þriðju verðlaun í glokki karla 50+
Hlynur Stefánsson, 2. sæti í flokki karla 50+
Guðjón Grétarsson sigraði flokk karla 50+
Hrönn Harðardóttir, 3. sæti í kvennaflokki.
Elsa Valgeirsdóttir endaði í öðru sæti í kvennaflokki eftir að hafa tapað hlutkesti gegn Katrínu Harðardóttur. Elsa tók þó við verðlaununum fyrir hönd Kötu sem var fjarverandi.
Gunnar Geir Gústafsson, 3. sæti í meistaraflokki
Lárus Garðar Long,
Vestmannaeyjameistarinn Daníel Ingi Sigurjónsson
Sigurvegarar í háforgjafarflokki kvenna, Þóra, Unnur og Harpa.
Sigurvegarar í kvennaflokki, Elsa Valgeirsdóttir, öðru sæti ásamt Hrönn Harðardóttur sem endaði þriðja. Systir hennar Katrín Harðardóttir og Vestmannaeyjameistari gat ekki verið viðstödd verðlauna afhendinguna.
Sigurvegarar í 1. flokki karla, Ingi Sigurðsson, 3. sæti, Brynjar Smári Unnarsson, 1. sæti og Helgi Sigurðsson, 2. sæti.
Sigurvegarar í öldungaflokki, Sigurður Guðmundsson og Kristján Ólafsson
Sigurvegarar í flokki 50 ára og eldri, Hlynur, Guðjón og Sigurjón.
Sigurvegarar í 3. flokki karla. Karl Jóhann Örlygsson, 1. sæti, Þór Kristjánsson, 2. sæti og Hannes Haraldsson 2. sæti
Sigurvegarar í 4. flokki karla. Arnar Berg Arnarson, 3. sæti og Birkir Freyr Ólafsson, 1. sæti. Á myndina vantar meistarann Daníel Franz Davíðsson
Efstu þrír í meistarflokki karla. Frá vinstri Lárus Garðar Long, sem endaði í 2. sæti þá meistarinn Daníel Ingi Sigurjónsson og loks Gunnar Geir Gústafsson sem endaði í 3. sæti.
Sigurvegarar í 2. flokki karla. Sævald Gylfason, 2. sæti og Andri Kristinsson, 3. sæti. Á myndina vantar meistarann Rúnar Gauta Gunnarsson.
Verðlaunahafar á meistaramóti GV 2018
Verðlaunahafar í kvennaflokkunum
Þessi unnu ekki neitt en vildu endilega fá að vera á mynd.