43 ár frá goslokum
Í dag og næstu tvo daga fögnum við Eyjamenn því að 43 ár eru frá mesta gleðidegi í sögu Vestmannaeyja. Deginum þegar tilkynnt var um formleg goslok í Vestmannaeyjum. Ekki þarf að fjölyrða neitt um hversu hroðalegt gosið var fyrir íbúa Vestmannaeyja. Allir sem einn máttu þeir um miðja nótt flýja heimili sín í fullkominni óvissu um hvort og þá hvenær þeir fengju aftur snúið til síns heima. Fjölskyldur tvístruðust, verðmæti töpuðust og ógnin var rík. Einhvern veginn gerist það ætíð að á þessum árstíma velti ég vöngum yfir stöðu samfélagsins.
Sterk staða
Í þessi 43 ár frá goslokum hafa skipst á skin og skúrir hjá okkur Eyjamönnum. Í dag eru Vestmannaeyjar í gríðalega sterkri stöðu og framtíðin er björt svo fremi sem bæjarbúar sjálfir haldi vel á spöðunum.
�?gnirnar…
….þekkjum við. �?ær eru fólgnar í skilningsleysi ríkisyfirvalda þegar kemur að samgöngum og heilbrigðisþjónustu. �?ar við bætist svo sú sterka ógn sem stöðugt er fólgin í sundurlindisfjandanum sem við ræsum reglulega. �?egar við berjumst á banaspjótum hvert við annað og hlífum jafnvel ekki persónum hvers annars. Sem betur fer er sú ekki staðan í dag, heldur ríkir bjartsýni og jákvæðni.
Tækifærin…
eru hinsvegar svo margfallt sterkari og framtíðin björt.
Íbúafjölgun
Íbúum hefur nú fjölgað stöðugt í næstum áratug. Búsettir Eyjamenn eru nú 4318 og þarf að fara aftur til ársins 2002 til að finna jafn marga íbúa. Engin mælistika er betri til að meta ástandið en íbúafjöldi. Undir henni eigum við framtíðina, styrkinn og stöðuna. Án nægs íbúafjölda molna undirstöðurnar.
Sterkur rekstur
Rekstur sveitarfélgsins er sterkur sem gert hefur stjórnendum mögulegt að stórauka þjónustuna og þar með til að mynda að taka upp frístundakort, opna félagsheimili fyrir aldraða í Kviku, auka niðurgreiðslu til dagmæðra, taka upp heimagreiðslur, fjölga leikskólaplássum, byggja upp öflugan miðbæ, byggja upp innrigerð fyrir ferðaþjónustu og svo margt margt fleira.
Sjávarútvegur er öflugur
Fyrirtæki í sjávarútvegi standa sterk. Bæði Ísfélag og Vinnslustöð hafa fjárfest gríðarlega mikið í innviðum fyrirtækjana sem skapa þeim sterka stöðu inn í framtíðina. Ný fyrirtæki í sjávarútvegi svo sem Marhólmar, Iðunn og Leo Fresh Fish hafa verið stofnuð og skapa störf og tækifæri fyrir tugi og jafnvel hundruði bæjarbúa.
Ferðaþjónusta styrkist hratt
Fyrirtæki í ferðaþjónustu eiga mikil tækifæri. Á örskömmum tíma höfum við séð ótrúlega þróun í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum. Í dag er stutt í að ferðaþjónustan verði alvöru stoð undir atvinnulífið á ársgrundvelli. �?að sem til þarf eru öflugri samgöngur.
Samgöngur
Samgöngur eru loks að nálgast það að fela í sér framtíðarsýn. Hvað sem hver segir þá er ljóst að ný ferja kemur til með að valda straumhvörfum og stór fjölga þeim dögum sem hægt verður að sigla í Landeyjahöfn. Áfram verða frátafir og áfram þarf að sigla eitthvað í �?orlákshöfn en það verður í langum færri tilvikum en verið hefur. Ernir sinna flugi af mikilli festu og veita frábæra þjónustu.
Sterk innrigerð
Innrigerð Vestmannaeyja hefur styrkst. Samfara öflugri ferðaþjónustu og miklum straumi ferðamanna hefur afþreyingu og veitingaþjónusta stór aukist. Ekki bara getum við heimamenn valið á milli bestu veitingastaða landins heldur höfum við aðgengi að fjölmörgum viðburðum og afþreyingarþjónustu. Núna á næstu mánuðum bætist svo við bíó og ekki er að efast að þar er kærkomin viðbót.
Menning og mannlíf
Á fáums stöðum er menning og mannlíf öflugra en í Vestmannaeyjum. Framboðið af slíku er líkara því að um væri að ræða milljónaborg. Tónlist og myndlist er ofarlega á blaði hjá Eyjamönnum en leiklist og fleira á hér djúpar rætur.
Menntun
Framboð af menntunartækifærum í Vestmannaeyjum er gott. Í við bót við grunnnám í grunnskóla höfum við hér þá mikilvægu stofnun Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. �?á er aðgengi að fjarnámi hjá Visku öflugt og gott og hafa hundruðir búsettra Eyjamanna nýtt sér þá leið til menntunar. Ekki skiptir svo litlu að í fyrsta skipti í sögunni er nú verið að hefja staðnám á háskólastigi núna í haust þegar boðið verður upp á nám frá HR og HA í Sjávartengdri nýsköpun.
Samstaða og baráttuvilji
Í Vestmannaeyjum eigum við svo það öflugasta vopn sem til er í byggðabaráttu. Við eigum samstöðu og baráttuvilja sem ekkert bítur á. Eins og íslendingar standa með strákunum í Frakklandi, þannig standa Eyjamenn með sinni byggð. �?annig fær ekkert okkur sigrað �?? ekki einu sinni eldgosið 1973 tókst að brjóta þrek Eyjamanna. Með það vopn í fararteskinu kvíði ég ekki komandi tíma.
Gleðilega goslokahátíð.
Elliði Vignisson bæjarstjóri birti þennan pistil á heimasíðu sinni.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.