Brim hf. - Beðið verði niðurstöðu rannsóknar Hlutafélagaskrár
Brim hf. sem minnihluta hluthafi í Vinnslustöðinni hf., vill koma eftirfarandi yfirlýsingu á framfæri sem svar við yfirlýsingu Seilar ehf. vegna stjórnarkjörs í Vinnslustöðinni og beiðnar Seilar ehf sem er í meirihluta eigu Haraldar Gíslasonar um hluthafafund:
�??Brim hf., minnihlutaeigandi í Vinnslustöðinni, fer fram á að fulltrúar meirihlutans bíði niðurstöðu yfirstandandi rannsóknar Hlutafélagaskrár á gjörðum þeirra á aðalfundi 6. júlí sl. áður en boðað verði til hluthafafundar. Hlutafélagaskrá er úrskurðaraðili í svona málum samkvæmt hlutafjárlögum.
Fulltrúar meirihlutans stigu fram í fjölmiðlum um helgina og lýstu því yfir að farið yrði fram á að stjórn, sem ekki lengur hefur umboð til að starfa fyrir hönd félagsins, boði til nýs hluthafafundar þar sem enn og aftur á að kjósa nýja stjórn yfir félagið. Fulltrúar minnihluta hluthafa mótmæla þessu harðlega. Niðurstaða fyrra stjórnarkjörs á aðalfundi félagsins 6. júlí sl. var fullkomlega lögmæt og aðeins á eftir að varpa hlutkesti um það hver tekur sæti sem fimmti stjórnarmaður félagsins í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga.
�?að er mikilvægt að forðast valdníðslu og virðingarleysi gagnvart lýðræðislegum kosningum. Heppilegast væri að fulltrúar meirihlutans með Harald Gíslason í broddi fylkingar sættu sig við niðurstöðu hins fyrra stjórnarkjörs, þrátt fyrir að niðurstaðan hafi ekki verið þeim þóknanleg, svo réttkjörin stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. geti hafið störf hið fyrsta með hagsmuni félagsins, starfsmanna og annarra sem því tengjast að leiðarljósi. Slík niðurstaða er sanngjörn fyrir alla hluthafa, ekki bara meirihlutann,�?? segir í yfirlýsingunni.

Nýjustu fréttir

Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.