Lögreglan - Skemmtanahald Goslokahátíðar gekk vel fyrir sig
Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í liðinni viku og þá var nokkur erill um helgina án þess þó að upp hafi komið alvarleg mál. Skemmtanahald Goslokahátíðar gekk vel fyrir sig og engin teljandi mál sem upp komu þrátt fyrir að fjöldi manns hafi verið að skemmta sér.
Ein eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu en um var að ræða skemmdir á lundastyttu sem er á Stakkagerðistúni. Er vitað hver þarna var að verki og er málið upplýst.
Einn fékk að gista fangageymslur lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar og var hann leystur út með sekt eftir að víman rann af honum.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku en í báðum tilvikum var um minniháttar óhöpp að ræða og lítil sem engin meiðsl á fólki.
Síðdegis þann 9. júlí sl. var lögreglu tilkynnt um eld í rústum gamla Ísfélagsins. �?egar lögreglan kom á staðinn var þar engin eldur en nokkur reykur. Talið er að kveikt hafi verið í stól sem var þarna inni. Ekki er vitað hver þarna var að verki.
Tvær kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum og var í öðru tilvikinu of margir farþegar fluttir í bifreið en í hinu var um ólöglega lagningu ökutækis að ræða.

Nýjustu fréttir

Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana
Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum
Engin lognmolla í nýju starfi
Samgöngur við Vestmannaeyjar – framtíðarsýn eða bráðabirgðalausnir?
Atli Steinn Arnarson semur við ÍBV
World Class mun rísa samhliða búningsklefunum
Skvísubúðin fagnar vori og sumri með fjölbreyttu vöruúrvali 
Stelpurnar æfa af krafti fyrir úrslitakeppnina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.