Skipar sérstakan sess í sögulegri vitund Eyjamanna
Á laugardaginn 27. janúar kl. 13 verður boðið upp á skemmtilega dagskrá í Einarsstofu þar sem Elliði Vignisson bæjarstjóri tekur á móti merkri gjöf frá Jóhönnu Hermannsdóttur. Um er að ræða eitt allra merkasta málverk Vestmannaeyja, Hefnd Helgafells eftir Guðna Hermansen. Verkið er málað rúmu ári fyrir gos og hafði forspárgildi fyrir það er síðar kom fram. Helgi Bernódusson skrifstofustjóri Alþingis mun rekja sögu málverksins og Hermann Einarsson fjallar um sinn góða vin, Guðna. Helgi Hannesson, sonur Jóhönnu mun afhjúpa verkið og að lokum ætlar Gísli Pálsson prófessor að segja frá ferð málverksins yfir hafið með stuttri myndasýningu.
�??Hér í Vestmannaeyjum þekkja margir til þessa málverks og það skipar sérstakan sess í sögulegri vitund Eyjamanna,�?? segir Kári Bjarnason forstöðumaður Safnahúss Vestmannaeyja. �??Sagan af þessu verki er mörgum kunn og þykir nánast forboði þess sem síðar varð. �?annig var að árið 1971 ofbauð Guðna svo mjög malartaka úr Helgafelli að hann málaði mynd af því er fjallið greip til sinna ráða og kallaði málverkið Hefnd Helgafells. Hann hafði þá nýverið farið í sína fyrstu mótmælagöngu, sem var farin að hlíðum Helgafells. Voru skilaboðin sem í verkinu fólust að sá kæmi dagur að Helgafell myndi vakna af dvala árþúsundanna og launa fyrir spjöllin, sem það líka og gerði,�?? sagði Kári.
Guðni Hermansen seldi Jóhönnu Hermannsdóttur frá Vestmannaeyjum sem búsett er í Bandaríkjunum málverkið. Árið 1972 tók hún það með sér til síns heima í Bandaríkjunum. Hún ákvað í fyrra að gefa málverkið til Vestmannaeyja og fór Eyjamaðurinn Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra ásamt fleirum til hennar og sótti verkið. Í ár eru liðin 90 ár frá fæðingu Guðna og verður málverkið í forgrunni sýninga á verkum listamannsins á afmælisárinu.
�?að var Gísli Pálsson mannfræðingur sem á heiðurinn að því að fá verkið til baka. Gísli er frá Bólstað í Vestamannaeyjum. Gísli setti sig í samband við Jóhönnu og í samtölum þeirra kom fram að hún vildi færa Vestmannaeyingum verkið að gjöf �?? eins og nú gengur eftir.
�??�?ótt verkið hafi nánast alla tíð verið vestur í Bandaríkjunum er athyglisvert hvað það hefur ávallt verið mörgum ofarlega í huga. �?etta er dýrmætt verk sem auðvitað á hvergi betur heima en hér í Eyjum,�?? segir Kári.

Nýjustu fréttir

Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Veit Inga hvað hún syngur?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.