ÍBV á að endurspegla eyjarnar
5. maí, 2018
Eyjafréttir ræddu við Kristján Guðmundsson, þjálfara ÍBV, sl. föstudag en þá var hann á fullu að undirbúa liðið fyrir fyrsta leik í Pepsi-deildinni gegn Breiðabliki. Kristján var bjartsýnn fyrir leiktíðinni og fullur eftirvæntingar.
Telur liðið betur undirbúið en í fyrra
Aðspurður út í undirbúningstímabilið sagðist Kristján vera þokkalega ánægður þrátt fyrir erfiðar samgöngur í byrjun árs. �??Nú bjó ég að því að hafa verið búinn að fara í gegnum heilt tímabil hérna með liðinu og það var dýrmætt. Nú er ég búinn að læra á hlutina hérna, hvernig fólk hagar sér, hvernig ég haga mér, í hvaða pytt ég á ekki að detta í og annað. Svo er maður búinn að venjast ferðalögunum og með hverju maður á að fylgjast. �?að sem var breytt frá því í fyrra var það að við náðum ekki að mæta í leiki í janúar og febrúar vegna samgangna. Deildarbikarinn var búinn 1. apríl þannig við þurftum sjálf að finna okkur leiki. Við þurftum nauðsynlega að bæta við leikjum því við vorum búnir að missa af svo mörgum leikjum og þurftum að spila liðið betur saman fyrir mótið. Í þetta sinn fór því meiri peningur í að ferðast upp á land í miðri viku til að spila æfingaleiki. Við röðuðum þessi niður eftir okkar hentugleika, styrkleiki liðanna sem við spiluðum við fór stigvaxandi og endaði svo á leik við FH hérna heima sex dögum fyrir mót. �?að var virkilega gott að FH liðið kom.�??
Er undirbúningurinn í ár s.s. betri en í fyrra? �??Já, ég myndi halda það, ég held við séum nær en í fyrra.�?? �?að þarf þá ekki hálft mótið til að slípa liðið saman? �??Vonandi ekki. En við erum t.d. að fá Yvan Erichot allt of seint í að spila heila leiki sem hefur áhrif á vörnina. �?að hafa verið skakkaföll í vörninni, við höfum þurft að senda menn heim vegna meiðsla. Að öðru leyti lítur þetta bara vel út,�?? segir Kristján.
Nauðsynlegt að brjóta upp mynstrið
Nú voru töluverðar breytingar á liðinu frá því á síðasta tímabili. Voru þetta nauðsynlegar breytingar? �??Já að einhverju leyti var nauðsynlegt að brjóta upp mynstrið og fá ferskari leikmenn sem þurfa að sanna sig. �?að þarf átak í að komast upp úr fallbaráttunni, menn þurfa að brjóta niður múra til að komast upp á næsta stig. En við vildum að sjálfsögðu ekki missa alla þessa leikmenn sem við misstum en við þolum það alveg. Við höfum fengið í staðinn unga leikmenn og nokkra útlendinga þannig þetta er allt að smella. �?að hvarf mest úr varnarlínunni, við misstum ekki svo mikið af miðjunni og svo skiptum við meðvitað um sóknarmenn.
Varnarmaðurinn David Atkinson væntanlegur aftur í herbúðir ÍBV
Að sögn Kristjáns var í raun úr litlu að moða á leikmannamarkaðnum á Íslandi í vetur. �??�?að voru örfáir leikmenn sem runnu út á samningi, leikmenn sem hefðu getað styrkt okkur. Við töluðum við einstaka aðila og allir voru jákvæðir en ákváðu að gera eitthvað annað en að koma til okkar. �?á er eina í stöðunni að finna unga og efnilega stráka sem þurfa að sanna sig. Við fengum það bæði hérna heima og úti. Síðan fengum við tvo reynslumikla Frakka og við munum einnig fá David Atkinson aftur til okkar, vonandi í vikunni,�?? segir Kristján sem reiknar jafnvel með fleiri mönnum til viðbótar.
�??�?að er ekki útilokað að við fáum til okkar einn leikmann í viðbót. Við erum sennilega að horfa á miðjuna fyrst við erum komnir með David í vörnina og Frakkann í sóknina. Svo eru nú komnir nokkrir strákar upp úr öðrum flokki, það var alltaf stefnan að þeir kæmu inn í þennan hóp en þeir hafa verið óheppnir með fótbrot, kviðslit og annað sem er svolítið pirrandi. �?að var stefnan að ná inn fimm til sex inn í þennan 18 manna hóp en ætli við séum ekki að ná inn þremur. Við viljum að þessir strákar fái mínútur.�??
Hver er t.d. staðan á Devoni? Kom eitthvað bakslag? �??�?að er í raun ekkert bakslag, en við þurfum að vita nánar hver staðan er á honum. �?að þarf eitthvað að skoða taugaendana í fætinum á honum en það lítur allt út fyrir að við getum látið hann spila, svona 98% líkur. Ef hann getur beitt sér og við erum ekki að skemma neitt þá mun hann spila en við tökum enga áhættu með hann, þess vegna er nauðsynlegt að fá allar upplýsingar og vera með allt á tæru.�??
Eru með markvisst þrepa-prógramm
Kemur þér á óvart að vera spáð botnbaráttu? �??Pepsi-marka þátturinn spáir út frá deildarbikarúrslitum og þar erum við í þriðja sæti riðilsins og tökum helming stiganna sem í boði eru. �?jálfarar og forráðamenn félaganna spá okkur einnig neðst þannig það er greinilegt að við höfum ekki gert nógu mikið til að vera �??sexy�?? í þeirra augum. Við höfum allavega ekki rætt þetta einu orði hérna inni, við erum einbeittir á þau markmið sem við höfum sett okkur og þau snúast um miklu betri hluti en þetta. Við erum með markvisst þrepa-prógramm. En það getur svo sem alveg verið eðlilegt að spá okkur þarna, það getur vel verið að við séum ekki búnir að styrkja okkur nóg en það er skrýtið að við eigum ekki meiri innistæðu. Við vinnum bikarinn og erum síðan bara að breyta aðeins um hóp, af hverju ekki að breyta um hóp? En það getur verið fínt að vera bara spáð 12. sætinu, það er mótivering fyrir einhverja og við munum bara nýta okkur það,�?? segir Kristján.
Eyjastemning
Helsti styrkleiki liðsins segir Kristján vera liðsheildina. �??�?ótt við séum ekki að raða inn mönnum sem eru að koma úr atvinnumennsku þá erum við að búa til liðsheild. �?að er hægt að nefna íslenska landsliðið en það er liðsheild sem er að vinna stærstu þjóðir heims sem hafa kannski stórkostlegustu einstaklingana. �?eir eru að vinna því þeir eru liðsheild, spila kerfið sitt og allir vita hvað þeir eiga að gera og með markmiðin alveg á tæru,�?? segir Kristján sem hefur einnig lagst í mikla vinnu við að finna út hvað Eyjastemning er.
�??�?g tel mig vera búinn að komast að því af hverju hún hefur horfið og hvernig á að fá hana til baka. �?að er eitt af markmiðum okkar að koma henni í gang, við erum aðeins á eftir áætlun þar. �?að vantar ákveðna pósta inn í þetta hjá okkur svo við náum henni alfarið en það mun koma. ÍBV á að endurspegla eyjarnar, vinnusemi og að leggja sig fram, gera allt fyrir samfélagið, það er það sem við viljum fá og þá held ég að ÍBV verði sterkt lið.�??
Sjálfsagt að stoppa menn úti á götu og spjalla á jákvæðu nótunum
Stuðningurinn mun væntanlega skipta ykkur öllu í sumar eða hvað? �??�?að er erfitt að fara yfir einhverja ákveðna tölu í stúkunni en fyrst og fremst vill maður að þeir sem koma sendi jákvæða strauma og séu að hvetja liðið, sama hvernig gengur og úti í bæ að tala jákvætt, það munar gríðarlega miklu. Svo að sjálfsögðu láta andstæðinginn heyra það, menn verða að fá útrás. Fólk má síðan endilega stoppa mig og leikmennina úti á götu og spjalla við okkur á jákvæðum og léttum nótum og fá kannski svör við einni eða tveimur spurningum sem brenna á þeim, við erum alveg opnir fyrir því,�?? segir Kristján að endingu.
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida EF 9 Tbl 2025
9. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.