Eyjamenn komnir í úrslit
Eyjamenn eru komnir í úrslit Íslandsmótsins eftir tveggja marka sigur á Haukum í kvöld, lokastaða 27:25. ÍBV vinnur einvígið 3:0 og mætir annað hvort FH eða Selfossi í úrslitum.
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en það voru heimamenn sem leiddu með einu marki þegar flautað var til hálfleiks, staðan 12:11.
Liðsmenn ÍBV mættu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og náðu strax undirtökunum. Haukarnir gáfust samt sem áður ekki upp þrátt fyrir að hafa verið fjórum mörkum mörkum undir og jöfnuðu leikinn þegar fimm mínútur voru eftir. Eyjamenn settu þá í næsta gír og kláruðu leikinn nokkuð örugglega.
Agnar Smári Jónsson var markahæstur í liði ÍBV með sex mörk. Aron Rafn Eðvarðsson átti enn og aftur stórleik í markinu og varði 18 skot.
Myndir – �?skar Pétur Friðriksson

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
„Við erum orðin skuldlaus“
Vinnslustöðin styrkir stöðu sína í Portúgal
Herjólfur aftur í fulla áætlun á morgun
Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.