Fagleg sjónarmið í forgangi
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri

Í dag verður haldinn hluthafafundur Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. Það eru hæg heimatökin því það er aðeins einn hluthafi, Vestmannaeyjabær, og handhafi hlutabréfsins er bæjarstjóri. Þetta er samkvæmt ákvörðun sem tekin var þegar félagið var stofnað fyrir síðustu kosningar; í tíð fyrrverandi bæjarstjórnarmeirihluta.

Formlegan seturétt á þessum hluthafafundi hafa einungis stjórnarmenn, handhafi hlutabréfsins og endurskoðandi félagsins, en samþykkt hefur verið ósk minnihlutans um að kjörnir fulltrúar hans fái að sitja fundinn sem gestir. Þetta er í samræmi við þá yfirlýstu stefnu núverandi bæjarstjórnarmeirihluta að öll stjórnsýsla, sem er beint eða óbeint á vegum bæjarins, skuli rekin með sem allra mestu gagnsæi og aðkomu sem flestra. Þetta á auðvitað ekki síst við þegar um er að ræða málefni sem varða hvern einasta bæjarbúa jafn miklu og þegar samgöngur og rekstur Herjólfs eiga í hlut.

Á dagskrá fundarins í dag er m.a. að kjósa félaginu nýja stjórn. Þetta er auðvitað í samræmi við skráðar og óskráðar reglur og venjur um að stjórnir, nefndir og ráð á vegum ríkis og sveitarfélaga skulu endurspegla sem best niðurstöður í lýðræðislegum kosningum. Þannig tilnefndi fyrrverandi meirihluti þrjá fulltrúa í núverandi fimm manna stjórn og minnihlutinn tvo. Sama verður uppi á teningnum á fundinum í dag; meirihlutinn tilnefnir þrjá og minnihlutinn tvo.

En kosning nýrrar stjórnar er ekki bara eðlileg og sjálfsögð af lýðræðislegum ástæðum heldur er hún líka bráðnauðsynleg af faglegum ástæðum. Það verður að vera hafið yfir allan vafa á hverjum tíma að stjórn félagsins starfi í fullu og óskoruðu umboði allrar bæjarstjórnar. Að öðrum kosti getur stjórnin ekki komið fram af fullum þunga og myndugleika fyrir hönd félagsins og það getur verið skaðlegt fyrir rekstur þess – og þar með hagsmuni bæjarbúa.

Það mun svo koma í ljós við stjórnarkjörið í dag, eins og við önnur tilefni, að núverandi bæjarstjórnarmeirihluti mun alltaf láta fagleg sjónarmið og hagsmuni bæjarbúa ráða för – umfram þröng flokkspólitísk sjónarmið. Það eru gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir okkur Eyjamenn að vel takist til með verkefni þessa félags og bæjaryfirvöld munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að svo megi verða.

 

Íris Róbertsdóttir

Bæjarstjóri

 

Nýjustu fréttir

Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.