10 ára samningaviðræðum við vegagerðina að ljúka

Á fundi framkvæmda- og hafnaráðs síðastliðinn föstudag, 17. ágúst lágu fyrir drög að samningi milli Vegagerðarinnar og Vestmannaeyjabæjar vegna skila Vegagerðarinnar á þjóðvegum í þéttbýli. „Með setningu vegalaga nr. 80/2007, var mælt fyrir um nýja skilgreiningu á stofnvegum sem leiddi til þess að fjöldi stofnvega í og við þéttbýli féllu úr tölu þjóðvega og urðu sveitarfélagsvegir. Þar á meðal voru nokkrir vegir í Vestmannaeyjum og voru þeir, við þetta, felldir út af vegaskrá. Með umræddri lagabreytingu uppfylltu þeir vegir ekki lengur skilgreiningar 8. gr. vegalaga til að geta talist þjóðvegir.”

Vestmannaeyjabæ var tilkynnt um niðurfellinguna með bréfi þann 15. júlí 2010 og að viðhald þessara vega myndi færast yfir til sveitarfélagsins frá og með 31.12.2010. Sammæltust aðilar um að vegum þessum yrði skilað í viðunandi horfi miðað við gerð þeirra.

Vestmanneyjabær hefur verið í samningaviðræðum núna í um 10 ár við Vegagerðina um yfirtöku á umræddum vegum. En bærinn hefur ekki viljað taka við vegunum í því ástandi sem þeir hafa verið í. Vegagerðin hefur nú hafið vinnu við viðhald þessara vega.

„Ráðið fagnar því að hreyfing sé komin á þetta mál og að Vegagerðin sé að vinna að viðhaldi þjóðvega í Vestmannaeyjum. Ráðið frestar afgreiðslu til næsta fundar.” segir í fundagerð framkvæmda- og hafnaráðs.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins verður 13. mars
Alexandra Ósk framlengir við ÍBV
Bifreið hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
Gugusar fimmti tónlistamaðurinn á Hljómey
Tónlistarsköpun fyrir ungmenni í Féló
Dramatískur sigur ÍBV á Haukum
Stórsigur ÍBV á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.