Næstkomandi föstudagskvöld 12. október kemur saman á Háaloftinu föngulegur hópur íslenskra tónlistarmanna og flytja tónlist Fleetwood Mac, einnar allra vinsælustu hljómsveitar rokksögunnar.

Ferli Fleetwood Mac má gróflega skipta í tvennt. Upphafstímabilið þar sem blústónlistin var allsráðandi og höfuðpaur sveitarinnar, hinn magnaði Peter Green réð ríkjum, og svo tímabilið sem hófst þegar Stevie Nicks og Lindsey Buckingham gengu í hljómsveitina. Hljómplatan Rumours kom út árið 1977 og sló sannarlega í gegn því hún sat í efsta sæti Billboard listans í Bandaríkjunum samfleytt í 7 mánuði. Rumours er fjórða söluhæsta hljómplata sögunnar og hefur selst í meira en 45 milljónum eintaka enda inniheldur hún ódauðleg lög eins og Don’t Stop, Dreams, Go Your Own Way, Songbird og Second Hand News.
„Við höfum haldið tónleika sem þessa víðsvegar um landið undanfarin ár við frábærar undirtektir, en alltaf átt Eyjarnar eftir. Og það er eiginlega bara ekki hægt að hætta þessu nema að bjóða Eyjamönnum að mæta,” sagði Eyjapeyinn Eiður Arnarsson í spjalli við Eyjafréttir. En þetta verður í síðasta sinn sem þessi hópur kemur saman til að flytja Rumours og bestu lög Fleetwood Mac.
Eiður leikur á bassa með hljómsvetinni, aðrir meðlimir eru Sigfús Óttarsson á trommur, Kjartan Valdemarsson á hljómborð og Kristján Grétarsson á gítar. Um sönginn sjá svo þau Ragnheiður Göndal, Sigríður Thorlacius, Magni og Margrét Eir.
„Á tónleikunum flytjum við meistaraverkið Rumours í heild sinni ásamt úrvali vinsælustu laga Fleetwood Mac. Má þar nefna Little Lies, Black Magic Woman, Hold Me, Seven Wonders, Gypsy, Big Love og Rhiannon.” sagði Eiður að lokum. En hann hlakkaði mikið til að flytja þessa tónlist heima í Eyjum, þar sem hann heyrði hana fyrst.
Áhugasamir geta nálgast miða á tix.is og í Tvistinum í Eyjum.
[add_single_eventon id=”60641″ show_excerpt=”no” show_exp_evc=”yes” ev_uxval=”3″ ]




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.