Sunnudaginn 14.október kl. 14.00 verður “bleik messa” í Landakirkju. Félagar úr Krabbavörn í Vestmannaeyjum munu taka virkan þátt í messunni, kynna starfið og segja frá hinum ýmsu hliðum Krabbavarnar.
Öll þekkjum við einhverja sem hafa þurft að takast á við krabbamein, ef við höfum ekki sjálf þurft að glíma við það.
Í messunni gefst kirkjugestum tækifæri til að tendra ljós fyrir þau sem eiga í baráttu við krabbamein, þau sem hafa átt í baráttu og náð bata og eins fyrir þau sem hafa þurft að lúta í gras fyrir sjúkdómnum.
Vonandi finna kirkjugestir eitthvað bleikt til að vera í til að setja skemmtilegan svip á stundina.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst