Viltu hafa áhrif?

Opið er fyrir umsóknir, ábendingar og tillögur vegna verkefnisins Viltu hafa áhrif 2019. Verkefnið er í samræmi við stefnu bæjaryfirvalda um aukið íbúalýðræði. Fjölmargar góðar ábendingar hafa borist í gegnum tíðina, má þar til dæmis nefna Frisbee golfvöll sem settur hefur verið upp við íþróttamiðstöðina og hoppudýnuna sívinsælu á Stakkagerðistúni.

Erindi, ábendingar og tillögur
Þeir íbúar, félagasamtök og fyrirtæki í Vestmannaeyjum sem vilja koma með erindi, tillögur og/eða ábendingar er varða fjárhagsáætlun 2019 eru hvattir til að koma þeim til skila í síðasta lagi 5. nóvember 2018 á netfangið andrea@vestmannaeyjar.is eða með hefðbundnum pósti „Merkt: Andrea Káradóttir, Vestmannaeyjabær Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjar”.

Styrkir
Á sama hátt eru þeir einstaklingar og félagasamtök sem hafa hug á að sækja um styrki eða framlög vegna starfsemi ársins 2019 bent á að senda inn umsóknir til bæjaryfirvalda í síðasta lagi 5. nóvember 2018 á netfangið andrea@vestmannaeyjar.is eða með hefðbundnum pósti á heimilisfangið: „Merkt: Andrea Káradóttir, Vestmannaeyjabær Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjar.

Skilyrði er að umsókninni fylgi greinargerð sem skýrir verkefnið sem sótt er um styrk til sem og síðasta skattframtal eða ársreikningur. Áskilinn er réttur til að krefjast frekari gagna, þyki þess þörf.

Nýjustu fréttir

Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
ÍBV tapaði stórt gegn FH í Kaplakrika
Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Eyjafólk í Landsleikunum á RÚV
ÍBV sækir FH heim í dag
ÍBV með öruggan sigur á HK
Malbikað á fimm stöðum í næsta veðurglugga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.