Ekkert nothæft röntgentæki er til staðar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum þessa dagana. En tækið sem hér hefur verið og er síðan 2005, bilaði fyrir tæpum tveimur vikum síðan. Myndlesarinn eða framköllunarvélin við röntgen tækið var í kjölfarið dæmdur ónýtur.
Í kjölfarið var fenginn að láni annar myndlesari en hann bilaði hinsvegar líka. „Sú óheppilega staða kom upp að myndlesarinn (framköllunarvélin) á röntgentæki HSU í Vestmannaeyjum bilaði í síðustu viku og hefur nú verið dæmdur ónýtur.Fenginn var annar lesara að láni í síðustu viku, sem bilaði einnig. Varahlutur var fenginn í hann erlendis frá, en við ísetningu hans kom í ljós að meira er bilað en áður hafði verið talið.” Segir í tilkynningu á heimasíðu HSU.
Þetta þýðir að ekki er unnt að nota röntgentækið í Eyjum. „Staðan er því þannig að það þarf að panta annan varahlut að utan og mun það ferli taka einhverja daga í viðbót. Af þessum sökum verður röntgentækið ekki í notkun næstu daga, en viðgerð verður flýtt eins og kostur er.”
Samkvæmt tilkynningu hefur framkvæmdastjórn HSU lagt fram beiðni til Velferðarráðuneytis um nauðsynlega endurnýjun á röntgentæki í Vestmannaeyjum.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.