Eigendastefnan lagaleg óvissa?

Erindi til bæjarráðs frá stjórn Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í gær. Ástæður bréfsins eru vegna eigendastefnu félagsins sem samþykkt var í bæjarráði í nóvember.

í bókun segir að bæjarráð hafi rætt drög að svarbréfi til stjórnar Herjólfs ohf. og á formaður bæjarráðs að svara stjórninni fyrir hönd ráðsins. Áður en málið er afgreitt í bæjarstjórn er formanni bæjarráðs falið að gera tillögur að orðalagsbreytingum á áður samþykktri eigendastefnu Herjólfs ohf.  Þetta var samþykkt með tveimur atkvæðum E- og H-lista gegn einu atkvæði fulltrúa D-lista.

Virða að vettugi málefnalegar athugasemdir stjórnar Herjólfs ohf.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur afar mikilvægt að tekið sé tillit til þeirra sjónarmiða sem koma fram í erindi frá stjórn Herjólfs ohf. þar sem óskað er eftir fundi milli fulltrúa stjórnar Herjólfs ohf. og fulltrúa bæjarráðs.

Í erindi stjórnar Herjólfs ohf. koma fram ýmsar athugasemdir og jafnvel efasemdir um að kaflar eigendastefnunnar eigi sér stoð í lögum. Það liggur í hlutarins eðli að með öllu verður að telja ótækt að bæjarráð stefni stærsta hagsmunamáli sveitarfélagsins í fullkomna lagalega óvissu með því að virða að vettugi málefnalegar athugasemdir stjórnar Herjólfs ohf. um eigendastefnuna og leggur því fulltrúi Sjálfstæðisflokksins til að leitað verði eftir áliti hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu á lögmæti eigendastefnunnar. Að öðrum kosti áskilja fulltrúar Sjálfstæðiflokksins sé allan rétt til að leita eftir slíkri umsögn.

Því óskar fulltrúi Sjálfstæðisflokksins eftir því að eigendastefnan verði endurskoðuð með tilliti til ábendinga fulltrúa stjórnar Herjólfs ohf. og á grundvelli svara bæjarráðs, nauðsynlegt virðist að skýra þurfi betur ákvæði eigendastefnunnar til að taka af allan vafa um merkingu og eðli hennar. Auk þess hefur stjórn Herjólfs ohf. óskað eftir fundi með bæjarráði með góðum fyrirvara áður en eigendastefnan er samþykkt í bæjarstjórn og telur fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sjálfsagt að verða við slíkri beiðni áður en málið kemur til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Þá vill fulltrúi Sjálfstæðisflokksins enn og aftur leggja þunga áherslu á að stjórn Herjólfs ohf. hafi óskorðað traust bæjarstjórnar og vinnufrið til að sinna sínum störfum í þágu bættra samgangna samfélagsins.  (Sign Trausti Hjaltason)

Ferli við gerð eigendastefnu Herjólfs hófst í september. Fyrstu drög voru lögð fyrir bæjarráð og rædd 1. nóvember og síðan voru lokadrög lögð fyrir og rædd á fundi bæjarráðs þann 20. nóvember. Var hún rædd og full unnin í góðu samkomulagi allra fulltrúa bæjarráðs og samþykkt. Við vinnslu eigendastefnunnar var haft samráð við Vegargerðina og litið var til annarra sambærilegra stefna sveitarfélaga og ríkis. Stefnan sem liggur fyrir til samþykktar hjá bæjarstjórn hefur líka verið lögð fyrir til kynningar í samráðshópi á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.
Aldrei hefur annað staðið til en að leitast til þess að tryggja framgang verkefnisins og að skerpa á samráði og samstarfi milli eiganda og stjórnar félagsins.
(Sign. Njáll Ragnarsson), (sign. Íris Róbertsdóttir)

Nýjustu fréttir

Sýningin Geological Rhapsody opnar á morgun
Nýtt fyrirkomulag í Uppbyggingarsjóði Suðurlands
Íþróttahátíð ÍBV í kvöld
Bærinn niðurgreiðir heimsendan mat um 53%
Sigurður Guðmundsson á Hljómey í ár
Jákvæðar umræður um Eyjagöng á Hvolsvelli
Eyjakona og drottning íslenskrar knattspyrnu
Bæjarstjórnarfundur í beinni

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.