Tortóla-dylgjum vísað til föðurhúsa

Í Morgunblaðinu 29. nóvember 2018, og á mbl.is í kjölfarið, er haft eftir Magnúsi Helga Árnasyni, fyrrverandi stjórnarmanni í Vinnslustöðinni, að hann hafi sagt sig úr stjórn fyrr í vetur vegna tregðu annarra stjórnarmanna til að láta kanna viðskipti VSV við Gordon Trade and Management LLP (GTM) í Bretlandi, sem sé eða hafi verið í eigu About fish Ltd, félags sem skráð sé í skattaskjóli á eyjunni Tortóla og beri sama nafn og fimm félög í eigu Vinnslustöðvarinnar báru.

Fyrir síðasta stjórnarfund bar Magnús Helgi fram dylgjur um að framkvæmdastjóri VSV tengdist Gordon Trade Ltd. í gegn um About Fish Ltd, staðsett í Englandi.  Málið var tekið sérstaklega fyrir á stjórnarfundi 9. nóvember 2018 þar sem fráleitum og rakalausum málatilbúnaði mannsins var svarað lið fyrir lið og m.a. upplýst um eignarhald eins og það var árið 2015. Þetta tiltekna félag, About fish Ltd. tengist Vinnslustöðinni eða eigendum hennar á engan hátt og hefur aldrei gert.

Vinnslustöðin hefur hins vegar selt GTM fisk og sama hafa mörg önnur íslensk sjávarútvegsfyrirtæki gert. Þau viðskipti sæta engum tíðindum svo vitað sé

Dylgjur Magnúsar Helga um GTM jaðra við rógburð um fyrirtækið. Í ljósi þess að hann kaus að fara með dylgjur sínar á opinberan vettvang sá GTM sér ekki annað fært en að senda nú frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að félagið eigi í alþjóðlegum viðskiptum með fisk, þar með talið íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og að engir íslenskir ríkisborgarar hafi haft fjárhagslega hagsmuni af félaginu.

Magnús Helgi Árnason sagði sig úr stjórn Vinnslustöðvarinnar vegna þess að enginn einasti hluthafi í félaginu kærði sig um að hann sæti þar áfram. Við manninum blasti að fá á sig vantraust á hluthafafundi í VSV. Hann kaus þá að láta sig þá frekar hverfa strax en reynir nú að tengja VSV við Tortóla til að draga athygli frá raunverulegum ástæðum úrsagnarinnar.

Eftir yfirlýsingu GTM stendur keisarinn nakinn.

Yfirlýsing frá Vinnslustöðinni hf. 5. desember 2018 .

Í framhaldi af yfirlýsingunni vegna Magnúsar Helga, sem sat í stjórn VSV á vegum Guðmundar Kristjánssonar í HB Granda/Brimi:

Eru þetta lokaorð í deilum fylkinga sem tókust á um árabil í eigendahópi Vinnslustöðvarinnar, Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri VSV og einn eigenda félagsins?

„Aldrei skyldi maður nú segja aldrei! Yfirlýsing Gordon Trade and Management LLP (GTM)  rekur alla vega ofan í kok Guðmundar Kristjánssonar og erindreka hans endalausar dylgjur og rugl um erlend leynifélög og fjármálamisferli í heilan áratug. Sá ljóti leikur hófst með því að lögmaður Guðmundar bar á starfsmann og eiganda VSV í kvöldfréttatíma Ríkisútvarpsins á árinu 2008 að sá hefði dregið sé fé í erlendum umboðsviðskiptum með mjöl og lýsi. Sá áburður endaði í rannsóknarbeiðni með tilvísun í minnihlutavernd.

Málslok þess urðu þau að Magnús Helgi Árnason lögmaður fletti bókhaldsskjölum Vinnslustöðvarinnar, tengdum meintum umboðsviðskiptum, og sagði svo:  ,,Nú er þetta svona … við héldum að starfsmaðurinn ræki umboðssöluna fyrir eigin reikning en ekki sem starfsmaður Vinnslustöðvarinnar!“. Samt stóð var þetta skýrt í ársreikningum VSV. Þeir félagar höfðu sem sagt hvorki kynnt sér ársreikningana betur en raun ber vitni og þekktu heldur ekki til  reksturs félagsins að þessu leyti.

Í kjölfarið var rannsóknarbeiðnin dregin til baka. Eftir sat auðvitað áburðurinn um misferli en datt þeim í hug að biðjast afsökunar á mannorðsmeiðingunum, hvorki opinberlega né persónulega. Nú kom enn einu sinni fram í stjórn VSV rakalaus þvættingur sem Magnús Helgi klifaði á í umboði Guðmundar og sást ekki fyrir í ákafanum því svo mjög lá á að sverta Vinnslustöðina og mannorð okkar sem stjórnum fyrirtækinu að hann fór að gera sölufyrirtækið GTM í Bretlandi tortryggilegt og nánast rægja það. GTM hefur keypt hefur fisk af mörgum fleiri íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum en Vinnslustöðinni, þar á meðal af HB Granda!

Í 10 ár hefur starfsfólk og eigendur Vinnslustöðvarinnar, aðrir en Guðmundur Kristjánsson, setið undir endalausum rógburði þeirra Magnúsar Helga Árnasonar. Nú er komið nóg og þótt fyrr hefði verið. Guðmundur Kristjánsson seldi hlut sinn í Vinnslustöðinni og hefur núna öðrum hnöppum að hneppa en í Vestmannaeyjum. Þeirra tími er liðinn í Eyjum og ég get ómögulega sagt að ég sakni þeirra!“

Nýjustu fréttir

Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana
Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum
Engin lognmolla í nýju starfi
Samgöngur við Vestmannaeyjar – framtíðarsýn eða bráðabirgðalausnir?
Atli Steinn Arnarson semur við ÍBV
World Class mun rísa samhliða búningsklefunum
Skvísubúðin fagnar vori og sumri með fjölbreyttu vöruúrvali 
Stelpurnar æfa af krafti fyrir úrslitakeppnina

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.