mars, 2019

fös29mar20:30Ekki missa af þessu!KK & Föruneytið20:30 Alþýðuhúsið:::Tónleikar

Lesa meira

Um viðburð

Kristján Kristjánsson, eða KK eins og flestir þekkja hann, er einn af tónlistarmönnum landsins. Hann hefur samið og leikið lög inn hljómplötur í áraraðir, samið tónlist fyrir leikrit, bíómyndir og sjónvarpsþætti auk þess sem hann hefur leikið eitt og eitt hlutverk sjálfur.
Lengi hefur hann þráð að flytja úrval af lögum sínum sem krefjast hljómsveitar, en fram að þessu hefur hann oftast verið einn á ferð með gítar og munnhörpu að vopni. Nú ætlar KK að láta þennan draum sinn rætast og hefur safnað saman góðum mönnum í föruneyti sem mun ferðast með honum vítt og breitt um landið nú um leið og blessuð sólin hækkar á lofti.

KK og föruneytið mætir í Alþýðuhúsið í Vestmannaeyjum föstudaginn 29. mars kl. 20.30.

Förunautar KK á vortúrnum eru
Eyþór Gunnarsson, hljómborð, raddir
Guðmundur Pétursson, ýmsir gítarar, raddir
Sölvi Kristjánsson, bassi, raddir
Kristinn Agnarsson, trommur, raddir

Tími

(Föstudagur) 20:30

Staðsetning

Alþýðuhúsið

Skólavegi 21b

X