apríl, 2019

fim18apr20:30Ekki missa af þessu!Bjartmar Guðlaugsson og hljómsveit20:30 Alþýðuhúsið:::Tónleikar

Lesa meira

Um viðburð

Bjartmar Guðlaugsson er einn af okkar uppáhalds. Okkur er mikil ánægja að kynna fyrstu tónleikana hans í Alþýðuhúsinu eftir breytingar. Hann mun flytja öll sín bestu lög ásamt frábærri Hljómsveit sem skipuð er einvala liði tónlistarmanna.

Börkur Hrafn Birgisson gítar og hljómsveitarstjóri
Daði Birgisson hljómborð
Bassi Ólafsson trommur
Ingi Björn Ingason bassi

Bjarmtar er án efa eitt fremsta skáld okkar sem skapað hefur karaktera eins og Sumarliða sem er fullur, tjáð hug týndu kynslóðarinnar, ljáð rödd afneitunar Alkans, strokið ástinni með að týna tímanum og svo mætti endalaust telja áfram.

Það ætti enginn að láta þessa frábæru kvöldstund framhjá sér fara.

Tími

(Fimmtudagur) 20:30

Staðsetning

Alþýðuhúsið

Skólavegi 21b

X