Vestmannaeyjabær kallar eftir afstöðu Landsbankans

Þann 18. desember 2018 var þingfest málsókn Vestmannaeyjabæjar, Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja og Vinnslustöðvarinnar hf. gegn Landsbankanum hf, þar sem krafist er að Landsbankinn greiði sanngjarnt og réttmætt endurgjald fyrir þau verðmæti sem bankinn hlaut með yfirtöku stofnfjár í Sparisjóði Vestmannaeyja við samruna bankans og sparisjóðsins.

Hugsanlegt er að aðrir fyrrum stofnfjáreigendur sparisjóðsins líti svo á að dómsmál ofangreindra aðila sé prófmál varðandi réttmæti þess endurgjalds sem Landsbankinn greiddi fyrir stofnfjárhluti í sparisjóðnum. Þar sem nokkur tími getur liðið þar til niðurstaða dómstóla um ágreiningsefnið liggur fyrir, þá kann að vera ráðlegt fyrir aðra fyrrum stofnfjáreigendur að leita einnig réttar síns gagnvart Landsbankanum. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar hefur því sent bréf til Lilju Einarsdóttur, bankastjóra Landsbankans hf., þar sem óskað er eftir afstöðu Landsbankans til þess hvort bankinn muni greiða öðrum fyrrum stofnfjáreigendum, sem ekki eru aðilar dómsmáli Vestmannaeyjabæjar og Vinnslustöðvarinnar gegn Landsbankanum, í samræmi við niðurstöður dómstóla fari svo að niðurstaðan verði sú að bankanum beri að greiða hærra verð fyrir stofnfjárhlutina.

Bréfið í heild sinni má lesa hér að neðan:

Landsbankinn hf.
b/t Lilju Einarsdóttur, bankastjóra.

Vestmannaeyjar, 15. janúar 2019.

Efni: Afstaða Landsbankans til fyrrum eigenda stofnfjár Sparisjóðs Vestmannaeyja

Þann 18. desember 2018 var þingfest málsókn Vestmannaeyjabæjar, Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja og Vinnslustöðvarinnar hf. gegn Landsbankanum hf.  Stefnendur krefjast þess að Landsbankinn greiði sanngjarnt og réttmætt endurgjald fyrir þau verðmæti sem bankinn hlaut með yfirtöku stofnfjár í Sparisjóði Vestmannaeyja við samruna bankans og sparisjóðsins. Fyrir liggur skv. matsgerð dómkvaddra matsmanna að Landsbankinn greiddi 45% of lágt verð fyrir stofnféð eða 151 milljón kr.

Undirrituð telur að margir fyrrum stofnfjáreigenda sparisjóðsins kunni að líta svo á, að dómsmál ofangreindra aðila sé prófmál varðandi réttmæti þess endurgjalds sem Landsbankinn greiddi fyrir stofnfjárhluti í sparisjóðnum. Hafa stofnfjáreigendur fylgst með fréttum um framkvæmd þess mats sem nú liggur fyrir.

Þar sem nokkur tími getur liðið þar til niðurstaða dómstóla um ágreiningsefnið liggur fyrir, þá kann að vera ráðlegt fyrir aðra fyrrum stofnfjáreigendur að leita einnig réttar síns gagnvart Landsbankanum. 

Með bréfi þessu er kallað eftir afstöðu Landsbankans til þess hvort bankinn muni greiða öðrum fyrrum stofnfjáreigendum, sem ekki eru aðilar dómsmálsins, í samræmi við niðurstöður dómstóla fari svo að niðurstaðan verði sú að Landsbankanum beri að greiða hærra verð fyrir stofnfjárhlutina.

Telja verður að það væri í samræmi við sanngirni, jafnræði, gagnsæi, auk þess að vera samfélagslega ábyrgt, að Landsbankinn léti í ljós afstöðu sína til framangreinds til upplýsingar fyrir aðra fyrrum stofnfjáreigendur í Sparisjóði Vestmannaeyja. Er óskað eftir svari innan tveggja vikna frá dagsetningu bréfs þessa.

Virðingarfyllst,
Íris Róbertsdóttir,
Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar.

Nýjustu fréttir

Þrjú lið frá ÍBV í bikarúrslitum um helgina
Strangar hæfiskröfur í útboði heilsuræktar
Ísfélagið áfram einn af aðalstyrktaraðilum KFS
Útflutningsverðmæti sjávarafurða um 360 milljarðar
Eyjarnar lönduðu fullfermi í Eyjum um helgina
Vestmannaeyjar – Alveg milljón
Kæru Eyjamenn, kæru sjálfstæðismenn
Drangavík VE dregin til hafnar eftir að veiðarfæri fóru í skrúfu – uppfært

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.