Eyjamaður ársins er Sjálfboðaliðinn

Hin árlega afhending fréttapýramída Eyjafrétta fór fram í Eldheimum í hádeginu í dag. Þetta var í 28. skipti sem fréttapýramídinn var veittur.
Þeir sem Eyjafréttir völdu að þessu sinnu hafa allir tekið þátt í að stimpla Vestmanneyjar frekar inn á kortið og auðga okkar samfélag, hver á sinn hátt.

Fjórar viðurkenningar voru veittar. Fyrir framlag til Íþrótta fékk meistaraflokkur karla í handbolta viðurkenningu. Ómar Garðarsson fyrverandi ritstjóri Eyjafrétta fékk viðurkenningu fyrir sitt framlag til menningarmála og Ólöf Aðalheiður Elíasdóttir fékk viðurkenningu fyrir sitt framlag til samfélagsins.

Fjöldamörg félög og samtök reiða sig á þátttöku sjálfboðaliða í starfi sínu í Vestmannaeyjum. Ætla má að margir eyjamenn hafi einhvern tímann tekið þátt í sjálfboðaliðastarfi. Fólk á öllum aldri ver þannig hluta frítíma síns í þágu mannbætandi starfs af ýmsu tagi.

Þetta þekkjum við í Vestmannaeyjum og eitt er víst að samfélagið okkar væri annsi fátækt ef það væri ekki fyrir allskonar eyjamenn sem taka að sér hin ýmsu sjálfboðaliðastörf. Verðmæti hvers samfélags er nefnilega mannauðurinn og í Vestmannaeyjum er fullt af fólki sem sinnir hinum ýmsu störfum, sum þeirra mjög óeigingjörn og allt er það í þágu samfélagsins. Eyjamaður ársins að mati ritstjórnar Eyjafrétta er því Sjálfboðaliðinn, í hvaða mynd sem er.

Hægt er að lesa nánar um málið í næsta tölublaði Eyjafrétta sem kemur út í vikunni.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.