Hækkar risið eða lækkar?
Ragnar Óskarsson

Ég er næstum því viss um að Fiskiðjan verður flott þegar framkvæmdum þar verður lokið. Mér finnast Eldheimar einnig nokkuð flottir þótt útlitið sé ekki alveg eftir mínum smekk.

Hvað skyldu þessi tvö mannvirki, Fiskiðjan og Eldheimar, eiga sameiginlegt. Það er margt sem þar má nefna og meðal annars það að bæði eru mannvirkin reist á vegum Vestmannaeyjabæjar. Á vegum bæjarins var gerð kostnaðaráætlanir fyrir þau bæði og í framhaldi af þeim ráðist í framkvæmdir.

Þegar framkvæmdum við Eldheima var um það bil lokið kom í ljós að upphafleg kostnaðaráætlun var gersamlega á skjön við raunverulegan kostnað, ekki bara nokkrum milljónum heldur milljónatugum og jafnvel hundruðum milljóna. Þrátt fyrir það var ekki talin nein ástæða til að athuga málin og leita raunverulegra skýringa á ósköpunum og læra af þeim. Nei, bærinn borgaði reikninginn og þar við sat.

Nú liggur fyrir að kostnaður við Fiskiðjuna hefur aukist svo frá upphaflegri kostnaðaráætlun að furðu sætir. Hér er ekki um að ræða nokkrar milljónir, heldur tugi milljóna og jafnvel hundruð milljóna.

Við þessar aðstæður hefur núverandi meirihluti bæjarstjórnar ákveðið að gera úttekt á hverju þetta sætir. Fara skal í saumana á framkvæmdum við Fiskiðjuna og komast að raunhæfum skýringum á því hve hörmulega tókst til í allri áætlanagerð. Læra skal af mistökunum sem svo sannarlega voru gerð. Þessari ákvörðun ber vissulega að fagna og hún sýnir að meirihluti bæjarstjórnar vill vanda til verka.

Það hryggir mig því meira en orð fá lýst að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn hafa nú lagst gegn því að þessi úttekt fari fram. Ég verð að játa að mér hefur ekki þótt hátt á þeim Sjálfstæðismönnum risið það sem af er kjörtímabilinu og ekki finnst mér það ris hafa hækkað við þessa óskiljanlegu andstöðu við að fá málin upp á borðið svo unnt verði að læra af hrikalegum mistökum í áætlanagerð.

Ragnar Óskarsson

Nýjustu fréttir

Mæðradagurinn haldinn hátíðlegur í Landakirkju
Bókunarkerfið enn niðri – Herjólfur birtir siglingaáætlun laugardagsins
Hvatningarverðlaun afhent og styrkir veittir til skólaþróunar
Vegagerðin með opinn fund um Land­eyja­höfn
Agnes Lilja og Klara í lokahóp u-18
Víkin heimsótti Vinnslustöðina
Herjólfur: Áætlun föstudagsins gefin út
ÍBV biðst afsökunar á ummælum í garð Hafdísar
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.