Þar sem bærinn kúrir í sínu stæði
Kári Bjarnason, Guðni Friðrik Gunnarsson, Hlynur Ólafsson og Íris Róbertsdóttir.

Í gær opnaði sýningin, Frímerkja- og póstsaga Vestmannaeyja í 100 ár. Kári Bjarnason opnaði sýninguna, Guðni Friðrik Gunnarsson hjálpaði til við undirbúning og sagði við opnunina í gær sýninguna uppistöðuna í sýningunni vera Átthagasafn Guðmundar Ingimundarsonar, sem hann og kona hans Jóhanna M. Guðjónsdóttir frá Hlíðardal færðu bænum að gjöf sumarið 1991 að lokinni Norrænni frímerkjasýningu í Reykjavík.

Jafnframt eru sýnd ljósrit úr safni Indriða Pálssonar, þar á meðal af elstu þekktu stimplun á frímerki í Vestmannaeyjum. Um er að ræða skildingamerki frá 1873 til 1876. Þá verður einnig sýnt yfirlit yfir þau frímerki sem vestmannaeyskir listamenn hafa unnið til útgáfu, eftir þá Ástþór Jóhannsson, Hlyn Ólafsson og Jóa Listó.

Hlynur Ólafsson, eyjamaður og hönnuður frímerkisins sagði í gær að þegar ákveðið var að hann fengi að hanna frímerki fyrir 100 ára afmæli bæjarins hafi farið í gang í gang vinna sem kostaði margar prufur og þrjár ferðir til Vestmannaeyja til að taka myndir og til þess að ná réttu myndinni, sem honum finnst að sýni bæinn á hógværan en samt fallegan hátt þar sem bærinn kúrir í sínu stæði.

Hlynur fékk svo Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra til þess að afhjúpa frímerkið með sér.

Sýningin er opin í dag föstudag kl. 10-18 og laugardag og sunnudag kl. 13-16.

 

Nýjustu fréttir

Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.